ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Íslenska uppboðið

08:28 › 17. nóvember 2009

Svarthöfði verður að viðurkenna að honum finnst dáldið mikið að borga tæpar tvær milljónir króna fyrir notaðan íþróttajakka. Sérstaklega í ljósi þess að um er að ræða jakka sem er með nafni fanga skrifuðu áberandi stöfum á bakinu. En á móti kemur að þetta getur verið hin ágætasta hugmynd til að afla tekna í ríkissjóð án þess að hækka skatta. Og er víst ekki vanþörf á nú þegar við göngum í gegnum þessa erfiðu tíma.

Þótt íslensk yfirvöld hafi verið gagnrýnd fyrir hægagang í rannsókn á orsökum hrunsins og hugsanlegum lögbrotum voru Bandaríkjamenn ekkert að tvínóna við að senda Bernie Madoff í fangelsi í 150 ár fyrir fjársvik sem kostuðu fjölda fólks himinháar fjárhæðir. Ekki nóg með það heldur efndu þeir á dögunum til uppboðs á eigum Madoffs og eiginkonu hans. Og þar mátti kaupa svo mergjaða hluti sem rándýra gimsteinseyrnalokka konu hans, flibbahnappa karlsins og notuðu golfskóna hans svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrir utan auðvitað íþróttajakkann sem merktur var New York Yankees hafnaboltaliðinu í bak og fyrir.
En Svarthöfði veltir fyrir sér hvort ekki megi gera eitthvað svipað hérna á Íslandi. Ef svo fer einhvern tímann að einhverjir verði ákærðir og dæmdir fyrir lögbrot í aðdraganda hrunsins gæti auðvitað verið kjörið að efna til uppboðs á eigum viðkomandi. Eða væri ekki hægt að fá einhvern pening til að fylla upp í fjárlagagatið með því að bjóða upp sumarhallir í landsins fegurstu sveitum, dýrustu lúxusbíla sem keyrðir hafa verið um götur og vegi Íslands, skútur sem fyrrverandi auðmenn gátu notið lífsins á og örugglega eitthvað úr fataskápnum og úr tómstundaherbergjunum?

Að vísu gæti komið upp á að allar eigur þeirra hafi verið keyptar með lánum og séu því veðsettar en örugglega er eitthvað upp úr þessu að hafa.

Þótt uppboðið í Bandaríkjunum hafi verið til að endurgreiða fórnarlömbum Madoffs eitthvað af því fé sem hann hafði af fólki er ekki þar með sagt að við þyrftum að eyrnamerkja innkomu íslenska uppboðsins einhverjum ákveðnum einstaklingum. Þar sem allir Íslendingar hafa orðið fyrir barðinu á hruninu gæti verið sniðugt að láta þetta bara renna í ríkissjóð. Og þannig útdeila þessu í hin ýmsu þjóðþörfu verkefni. Eða er ekki alltaf verið að tala um það annars vegar að það þurfi að hækka skatta og hins vegar að það megi ekki hækka skatta um of? Og vonandi er ekkert of brjálæðislegt við hugmyndina um að bjóða upp eigur brotamanna. Eða hvað?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?