ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Grafskrift nýja-Íslands

08:25 › 9. október 2009

Svarthöfði er sífellt að komast betur í skilning um að allt er öðrum að kenna.

Það voru Bretar sem ollu efnahagshruninu á Íslandi með hryðjuverkalögum sínum. Það er Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að kenna að við náum okkur ekki upp úr kreppunni. Það er Evrópusambandinu að kenna að Icesave-skuldirnar lentu á okkur. Og ESB vildi ekki leyfa okkur að taka upp evru einhliða. Þetta er allt útlendingum að kenna.

Íslendingar þurfa engan Alþjóðagjaldeyrissjóð. Burt með hann! Við getum gert þetta sjálf! Íslendingar hafa sýnt í gegnum árin að þeir geta stýrt stýrivöxtunum í réttan farveg. Okkar upplýsta þjóð hefur einnig sýnt óumdeilda getu til að kjósa framúrskarandi leiðtoga til að stýra efnahagsmálunum. Við gerðum ekkert rangt, nema kannski að samþykkja ákvæði EES-samningsins um innistæðutryggingar.

Ef útlenskir fjölmiðlar hefðu ekki fjallað svona neikvætt um Íslendinga hefði skuldatryggingarálagið aldrei fallið. Og ef útlendingar hefðu ekki verið svo miklir ratar, að setja Lehman-bræður á hausinn, hefði engin lausafjárþurrð orðið. Allt eru þetta utanaðkomandi vandamál sem við berum enga ábyrgð á. Við urðum fyrir efnahagslegum fellibyl sem erlendir gjörningamenn hrintu af stað. Það er ekki okkur að kenna.
Útlendingar eru öfundsjúkir og ásælast auðlindirnar okkar. Enda býr engin önnur þjóð við jafnöfundsverðar langtímahorfur og við.

Það eru ekki til nein rök, aðeins hagsmunir. Fólk og fjölmiðlar eru annaðhvort vinstri eða hægri og þeir sem viðurkenna það ekki eru óheiðarlegir. Þeir sem eru vinstri eru fylgjandi Evrópusambandinu og tilheyrandi landráðum. Vinstrimenn vilja koma auðlindunum til útlendinga, svo þeir geti sjálfir nærst úr kjötkötlunum í Brussel.
Þetta ber allt að sama brunni. Annaðhvort eruð þið með okkur Íslendingum eða á móti okkur. Látið okkur í friði, útlendingar, og gefið okkur Íslendingum olnbogarými til endurreisnar. Varist vinstrimenn, því þeir munu landið gefa. Enn verri eru þeir sem eru ekki hægrimenn en viðurkenna samt ekki að þeir séu vinstrimenn.

Nú þurfum við umfram allt sterkan leiðtoga sem getur talað kjark í þjóðina. Icesave er nefnilega það sama fyrir Íslendinga og Versalasamningarnir voru fyrir Þjóðverja. Íslandi allt.

Byggt á endurskrift sögunnar og umræðunni um endurreisn íslenska efnahagslífsins.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?