Hvað gerir maður við roskinn prest sem beitir óumbeðinni „sálusorgun“ gagnvart unglingsstúlkum, sem felst í kjassi, faðmlögum og yfirlýsingum um hvað hann sé nú skotinn í þeim? Ef maður er biskup Íslands þá býður maður prestinum 20 milljónir fyrir að taka pokann sinn.
Herra Karl Sigurbjörnsson á ekki sjö dagana sæla á biskupsstóli. Fólk streymir úr þjóðkirkjunni, Helgi Hóseasson er hinn nýi dýrðlingur alþýðunnar, og dómstólar dæma Karl fyrir brot á jafnréttislögum. Og nú þetta: 20 milljónir, takk fyrir, til að losna við að taka af röggsemi á málum Gunnars Björnssonar. Lætur einhver sér detta í hug að herra Sigurbjörn Einarsson hefði verðlaunað Gunnar með tugmilljóna starfslokasamningi?
Fjölskylda biskups ræður lögum og lofum í þjóðkirkjunni, sem einna helst minnir á eignarhaldsfélag. Framkvæmdastjórinn hefur hins vegar lítil tök á rekstrinum og ekki heldur þann myndugleika sem þarf á þessum síðustu og verstu tímum. Eins og þessi nýjasta fjárfesting hans í friði fyrir Gunnari Björnssyni ber svo vel með sér. Karl hefur vissulega titrandi og valdsmannslega rödd, eins og Sigurbjörn heitinn - en hann hefur ekkert að segja.
Flóttinn úr þjóðkirkjunni, sem nú stendur varla undir því nafni lengur, hófst í tíð forvera Karls, hins mjög svo litríka og ögn umdeilda Ólafs Skúlasonar, en biskup hefur ekkert getað gert til að stöðva þá þróun af einfaldri ástæðu: Enginn hlustar á þann sem hefur ekkert að segja.
Þjóðkirkjan þiggur þúsundir milljóna úr ríkissjóði. Nú mun hluti af þeim peningum tryggja að séra Gunnar Björnsson geti frílistað sig næstu árin á kostnað almennings, annar hluti fer í að borga afglöp biskups vegna frændsemisráðninga.
En mest, langmest, fer auðvitað í að viðhalda þeirri tímaskekkju sem kallast þjóðkirkja en er það ekki.
Blogg
Friðþæging séra Gunnars
08:54 › 30. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
