ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Pínulítill karl

08:20 › 27. október 2009

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra er með djarfari mönnum á Íslandi. Hann ætti í raun að flokkast sem fífldjarfur eftir að hann leyfði sér í ræðu að benda á að íslenskir sægreifar væru hluti af auðvaldi og aflögufærir nú þegar tómahljóðið bergmálar í ríkiskassanum. Ráðherrann ósvífni sagði að samtök útgerðarmanna, Saumaklúbbur sægreifanna, væru grátkór. Árni Páll gerir sér enga grein fyrir því að útgerðarmenn Íslands eru guðsútvaldir til þess að eiga fiskistofna og hlúa að þeim. Eðli málsins samkvæmt þurfa þeir að færa fórnir til þess að fisktegundir deyi ekki út. Alla daga vikunnar eru sægreifarnir á vaktinni til að fiskurinn lifi og þjóðin komist af. Svo eru þeir kallaðir kór.

Friðrik J. Arngrímsson er hugumprúður forsöngvari og kórstjóri þess hóps manna sem gefur Íslandi allt. Hann er maðurinn sem hefur umboð til þess að varðveita fjöregg íslenska lýðveldisins. Ráðherrann gerir mikil mistök með því að kalla bjargvættinn auðvald.  Og auðvitað svaraði Friðrik honum að bragði og vitnaði í texta Þurfsaflokksins: „Þú ert pínulítill karl“. Það er raunar einkenni á íslenskum smámennum að viðurkenna ekki stærð sægreifanna sem margir hverjir eru að ganga í gegnum ofboðslegar þrautir. Þeir hafa neyðst til að kaupa hluti í bönkum og útrásarverkefnum. Til þess tóku margir þeirra kúlulán sem orðin eru risastór. Neyðin rak marga þeirra til þess að veðsetja kvóta sína.

Þessa dagana eru kúlumennirnir vansvefta, hoknir af áhyggjum, við að færa kvótann undan kúlulánunum í samráði við banka sína. Þessu fylgir gríðarleg spenna og sálarangist. Yfir sonum og dætrum Íslandsmiða er skuggi fátæktar sem skyggir á sólina og  færist stöðugt nær. Og í miðju stríðinu um fiskistofnana sem ógnað er af risastórum kúlulánum er ráðist á hermenn Íslands með óbótaskömmum. Þegar þjóðin ætti að fara niður á hnén og biðja fyrir stórmennum sínum er einhver pínulítill karl að rífa kjaft. Það er af sem áður var þegar ráðherrar vissu að þeir áttu að ávarpa sægreifa eða vísa til þeirra með lotningu. Þá vissu menn að rjómi þjóðarinnar er samsettur úr mönnum og konum sem eiga kvóta og hafa réttinn til að veðsetja lifandi fisk í þágu þjóðar. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?