Ekki geta allir draumar ræst. Sú var tíð að Björn Bjarnason fóstraði með sér draum um að verða borgarstjóri í Reykjavík. Eins og pabbi. Hann langaði líka að verða ritstjóri Morgunblaðsins. Eins og pabbi. Og hann langaði að verða forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Eins og pabbi.
Björn Bjarnason varð leiðtogi minnihlutans í Reykjavík. Hann varð aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Og hann varð aldrei formaður, ekki einu sinni varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann varð heldur ekki forsætisráðherra, en endaði ferilinn sem frekar úrillur dómsmálaráðherra.
Nú er Björn Bjarnason þáttagerðarmaður á hinni bráðskemmtilegu sjónvarpsstöð Ingva Hrafns, auk þess að reyta af sér brandara á netinu. Nú síðast með því að krefjast þess að Egill Helgason, sem strangt tekið er keppinautur Björns á öldum ljósvakans, verði rekinn frá RÚV fyrir að setja fram skoðanir á Eyjunni!
Áður höfðu ekki minni menn en Sturla Böðvarsson (muniði eftir honum?) og Hannes Hólmsteinn (er engin leið að gleyma honum?) glefsað í hælana á Agli, sem er greinilega orðinn óvinur númer eitt í Valhöll. Það er full ástæða til að óska rauðhærða Vesturbæingnum til hamingju með þann árangur. Áður var sagt: Segðu mér hverjir vinir þínir eru, og ég skal segja þér hver þú ert -- en því má nú snúa við: Segðu mér hverjir eru óvinir þínir, og ég skal segja þér hver þú ert.
Sá sem á Sturlu Böðvarsson, Hannes Hólmstein og Björn Bjarnason að óvinum hlýtur að vera á réttri leið (á sama hátt og sá sem hefur Árna Johnsen og Auði Eir sem bandamenn ætti að hugsa sinn gang).
Það eru í hæsta máta dapurleg örlög þess manns, sem eitt sinn lét sig dreyma stóra drauma, að daga uppi sem áhrifalaus kverúlant og aðhlátursefni. Slíkt er því miður hlutskipti Björns Bjarnasonar. Egill Helgason er líklega einn af fáum mönnum á Íslandi sem gæti stofnað stjórnmálaflokk utan um sjálfan sig, og þyrfti varla meira en eitt síðdegi. Hann er stórveldi í íslenskri þjóðfélagsumræðu, og eiginlega fyrir neðan virðingu hans að ansa gasprinu í Birni, Stulla stuð og félögum.
Blogg
Til eru fræ...
15:30 › 23. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
