ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Þetta er allt að koma

08:18 › 21. október 2009

Svarthöfði er næmur á hin hárfínu blæbrigði tilverunnar og veit því iðulega hvað klukkan slær og þarf því ekki að reiða sig á spádóma og framtíðarsýn háskólamenntaðra spekinga og hinna fjölbreyttu greiningardeilda tilverunnar. Svarthöfði sá því aldrei ástæðu til þess að taka nokkurt mark á greiningardeildum bankanna sem voru þegar upp var staðið svo glámskyggnar að þeim var fyrirmunað að sjá fyrir eigin dauða. Eiginlega minna greiningardeildir hrundu bankanna einna helst á falsspákerlingar sem eru góðar í að giska út í loftið og blekkja þannig auðtrúa sálir en er um leið lífsins ómögulegt að græða á getraunum eða lottói. Og alltaf verða þær jafn hissa þegar þær lenda undir strætisvagni.

Svarthöfði hefur aldrei fallið fyrir fréttum miðla og spákerlinga að handan þótt Svarthöfða hafi dregið hann á stöku miðilsfund í gegnum tíðina. Traust Svarthöfða á eigið brjóstvit bjargaði honum þannig frá því að taka myntkörfulán og kaupa marmarahöll, jeppa með fellihýsi og 45 tommu flatskjá í eldhúsið. Svarthöfði var nefnilega góðu heilli vakandi í eðlisfræðitímanum í barnaskóla þar sem talað var um orku. Hann veit því að orka verður aldrei til úr engu og þar sem peningar eru ekkert annað en orka vissi Svarthöfði ætíð upp á sína tíu fingur að ofsagróði íslensku pappírstígrisdýranna væri bara plat.

Því er þó ekki að neita að Svarthöfða fannst svolítið fyndið á sínum tíma að íslenskir auðmenn skyldu getað komist inn á Forbes-listann yfir ríkustu menn í heimi. Það var magnað. Svarthöfði gefur þó ekki túkall fyrir svona Forbes-lista en treystir hiklaust á lista yfir vinsælustu lögin, tónlistarfólkið og gengisvísitölur kvikmyndaleikara og Parisar Hilton. Þessir listar eru nákvæmlega stilltir taktmælar á gang tilverunnar.

Á meðan góðærisgeggjunin var í hámarki var allt morandi í frægu fólki á Íslandi. Gerard Butler, Matt Damon, Quentin Tarantino og Eli Roth settu svip sinn á næturlífið og Tarantino hafði svo gaman af því að horfa á Íslendinga kveikja í peningum að hann gat ekki stillt sig um að hanga hér fram yfir áramót.

Á þessum tíma fór ekkert á milli mála að Ísland var stórasta land í heimi og því ekkert eðlilegra en auðmenn skelltu sér til Kína að horfa á silfurdrengina fara á kostum í ólympíukeppninni í handbolta. Sigurvíman og trylltur fögnuðurinn yfir því hversu æðisleg og stór við erum var varla runninn af þjóðinni þegar rothöggið kom. Góðærið var feik og við vorum bara ekkert stór, hipp og kúl heldur niðurlægðir aumingjar sem hafa nú mátt í heilt ár staulast með betlistaf um heimsbyggðina.

Svarthöfði fær þó ekki betur séð en að nú sjái fyrir endann á þessari niðurlægingu og að landið sé byrjað að rísa. Við losnum sennilega við Icesave-delluna úr umræðunni á næstunni og getum farið að byggja upp á ný þótt einhverjir boltastrákar á stuttbuxum og veruleikafirrtir framsóknarmenn virðist enn vera í Kína-vímu síðan í ágúst 2008 og standi í þeirri meiningu að við séum enn stórust í heimi og í stakk búin til að fara í slag við Hollendinga og Breta. Hver heilvita maður sér auðvitað að gjaldþrota þjóð sem á hvorki skriðdreka né kafbát verður óhjákvæmilega beygð í duftið.

Þrátt fyrir Icesave-niðurlæginguna og óbragðið sem henni fylgir erum við á uppleið en það sést best á því að fræga fólkið er farið að láta sjá sig á ný. Allt byrjaði þetta á því að ljósgjafinn Yoko kom til landsins og aldrei þessu vant fylgdu ekki hörmungar í kjölfarið. Þetta var góður fyrirboði og ekki spillti fyrir að sagan segir að gleðiglyðran Lindsay Lohan hafi verið í föruneyti Yoko. Ef Lindsay nennir að koma hingað þá erum við að komast aftur á kortið. Og svo flaug sjálfur John Travolta hingað um helgina, staldraði við og borðaði góðan mat.

Meira er ekki um þetta að segja. Þetta er allt að koma.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?