ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

BLÁSKRIFT DAVÍÐS

08:19 › 2. október 2009

Svarthöfði hefur ríka samúð með Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins. Sá góði maður, sem tileinkaði sér lífsspeki ömmu sinnar, má hvergi drepa niður fæti án þess að allt ætli um koll að keyra. Nú síðast hafa áskrifendur Morgunblaðsins sagt blaðinu upp af fádæma ósvífni. Ástæðan er sú ein að hann fékk vinnu þar og ætlar að fjalla af hlutleysi og heilindum um þau asnaprik sem komu Íslandi á hausinn.

Auðvitað er Morgunblaðið kjörið til þess að koma sannleikanum, eins og Davíð þekkir hann, á framfæri. Svarthöfði hefur ekki hugmynd um það hvort 7.000 áskrifendur hafa sagt upp Mogganum eða 3.000. Það breytir ekki því að þetta eru kaldar kveðjur til landsföðurins sem alla sína tíð hefur á launum hjá ríkinu barist fyrir einstaklingsframtakinu. Hann er ekkert minni maður þótt hann hafi sjálfur enga reynslu af starfi í einkageiranum. Einhver þarf að hafa vit fyrir fjöldanum og marka samfélaginu ramma laga og siðferðis. Og Davíð veit manna best að hans skoðanir eru þær einu réttu þótt þær kunni að líta illa út í fyrstu.

Morgunblaðið stendur mörgum manninum hjarta nær. Það hefur komið út í rúm 90 ár og verið aufúsugestur á ótal íslenskum heimilum. Minningargreinarnar eru óborganlegar rétt eins og krossgátan á laugardögum. Það er ansi harkalegt að hafna þessum öldungi við það eitt að ritstjóri með rangar skoðanir hafi vikið fyrir öðrum með réttar skoðanir. Fjölmiðlar verða að stjórna skoðanamyndun af fyrirhyggju svo heimskur almúginn fari sér ekki að voða. Það er skelfileg tilhugsun að þjóðin gangi upplýst í Evrópusambandið. Þá er það hræðilegt að þurfa að greiða skuldir óreiðumanna á borð við sparifé Breta og Hollendinga. Og auðvitað er engin sanngirni í því að halda því á lofti hver lét óreiðumennina hafa Landsbankann sem þeir svo steyptu í glötun. Það er líka fullkomið aukaatriði hver setti Seðlabankann á hausinn með upphæð sem nemur margföldu Icesave.

Það eina rétta nú þegar áskrifendur Moggans hafa yfirgefið höfuðmiðil sannleikans er að setja lög í landinu. Mogginn verður að fara á sama stall og Ríkisútvarpið. Þjóðin verður að undirgangast nefskatt til þess að halda bláskrift Davíðs úti undir merkjum Morgunblaðsins.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?