Ísland 2009 er eins og önnur vídd; hliðstæður veruleiki þar sem allt snýr öfugt.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem átti forgöngu að viljayfirlýsingu um að Icesave yrði borgað, er núna furðu lostinn yfir málinu. Steingrímur J. Sigfússon, sem fann auðvaldinu allt til foráttu, er nú helsti varðmaður fjármagnseigenda og banka. Fyrst vildi Steingrímur Alþjóðagjaldeyrissjóðinn burt, en svo vildi hann allt fyrir hann gera.
Davíð Oddsson, fremsti forkólfur klíkuskapar og leyndarhyggju, skrifar leiðara um eitrandi pukur Jóhönnu Sigurðardóttur. Samt leyndi hann yfirvofandi efnahagshruni fyrir þjóðinni í sjö mánuði. Davíð lagði fæð á fjölmiðla í eigu Baugs fyrir meinta hlutdrægni, en finnst heilbrigðara að ritstjóri sé með „flokksskírteini“. Davíð stýrði Seðlabankanum í mesta þrot þjóðarinnar og var titlaður versti seðlabankastjóri heims af erlendum fjölmiðlum, en er nú orðinn mesti gagnrýnandi landsins. Hann er eins og maður sem drullar út húsnæðið og öskrar svo á skúringarkonurnar fyrir að missa af bletti.
Ríkisstjórnin lagði hundruð milljarða í að bjarga bankainnistæðum, sem voru að 70 prósentum í eigu 10 prósenta þjóðarinnar, en hefur svo ekki efni á að lækka stökkbreytt fasteignalán sem sliga almenning. Ólafur Ragnar Grímsson forseti telur að Ísland hafi fram að færa mikilvægan lærdóm af efnahagshruni, en vill 30 ára frest til að birta bréf sín til stuðnings útrásarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir, sem hefur barist gegn verðtryggingu í áraraðir, viðheldur verðtryggingunni. Jóhanna, sem sagði sig úr Alþýðuflokknum árið 1994 svo hún gæti staðið á sannfæringu sinni, krefst þess svo að Ögmundur Jónasson gefi eftir sannfæringu sína í Icesave-málinu.
Framsóknarflokkurinn, sem bjó til mestu fasteignabólu og hættulegasta þensluskeið Íslandssögunnar, segir að Jóhanna Sigurðardóttir vinni gegn endurreisn efnahagslífsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson framsóknarformaður gagnrýnir McCarthy-isma í þjóðfélaginu og sakar svo Jóhönnu Sigurðardóttur um eins konar landráð í þágu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Ari Edwald, forstjóri 365, eykur þjónustu Fréttablaðsins við landsbyggðina með því að láta landsbyggðarfólk borga fyrir blaðið. Seðlabankinn rústaði efnahagslífinu með háum stýrivöxtum og tilheyrandi innstreymi fjármagns, en vill svo leysa vandann með háum stýrivöxtum.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Göbbels nýfrjálshyggjunnar sem rústaði Ísland, segist vera eins og ofsóttur gyðingur. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, furðar sig á því að „hæfileikafólkið“ sem stýrði bönkunum í þrot fái ekki veigameira hlutverk í endurreisninni.
Ekki er að undra að Íslendingar skilji hvorki upp né niður í þessu landi fáránleikans.
Blogg
ÖFUGA ÍSLAND
08:18 › 14. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
