Í yfirstandandi kreppu hefur Svarthöfði verið að leita leiða til að bæta úr lausafjárstöðu sinni. Möguleikar til tekjuaukningar eru engir þannig að horfa þarf til annarra leiða. Það var svo í gærmorgun að hugurinn uppljómaðist. Sagt var frá því í DV að Björgólfur Guðmundsson hefði verið með einkar sniðugt fyrirkomulag. Hann keypti banka og nokkur fyrirtæki og lét allt spila saman. Bankinn lánaði fyrirtækinu með veði í öðrum fyrirtækjum. Þannig var hægt að koma sparifé kenndu við Icesave í gagnið á Íslandi.
Og þarna opnast möguleiki fyrir Svarthöfða til að lagfæra lausafjárstöðuna. Vegna þess að reksturinn er smár í sniðum þarf ekki heilan banka inn í köngulóarvefinn. Sparisjóður dugir. Þegar skotsilfur er ekki til fyrir afborgunum af húsi Svarthöfða þá einfaldlega leitar hann eftir láni í sparisjóðnum. Veðhæfnin á húsinu er engin þar sem það er veðsett langt upp fyrir rjáfur. Þess vegna er kjörið að bjóða veð í garðinum sem er skuldlaus.
Sparisjóðurinn fagnar þessu og lánið dettur inn á einkareikning Svarthöfða. Þegar frá líður brenna þeir peningar upp. Bílalánið er þiðnað eftir þriggja mánaða frystingu og enn þarf lán frá sparisjóðnum. Svarthöfði slær upp fundi með sjálfum sér og biður um peninga. Það er sjálfsagt en vandinn er sá að bíllinn er veðsettur upp fyrir loftnet. Eftir nokkrar rökræður við sjálfan sig um reglur sparisjóðsins finnur Svarthöfði að eitthvað loðið strýkst við fótlegg hans þar sem hann situr í veðsettum garðinum. Þetta var norski skógarkötturinn hans sem að vanda sýndi hlýju og tryggð. Kötturinn hafði kostað stórfé í góðærinu en var hverrar krónu virði. Svarthöfði gerði uppgötvun. Kötturinn var skuldlaus og veðhæfur. Hann nefndi þetta umsvifalaust við sjálfan sig og eftir nokkurt hugarþref samþykkti hann veðið og náði að borga af bílaláninu.
Þannig hefur líf Svarthöfða tekið miklum stakkaskiptum. Hringrás peninganna er fullkomin og áhyggjur af fjármálum standa aðeins þá stuttu stund sem Svarthöfði er að gera upp við sjálfan sig að lána Svarthöfða með veði í Svarthöfða. Til að sýna sjálfum sér fyrirhyggju hefur nú verið farið yfir möguleg veð í eignum Svarthöfða. Þar er af einu og öðru að taka. Tjaldvagninn sem keyptur var í miðju góðærinu er skuldlaus og fullkomlega veðhæfur. Þá má hugsa sér að slá út á eiginkonuna með einum eða öðrum hætti. Og ef allt fer í hnút er samt til leið. Það fellur fullkomlega að útlánareglum sparisjóðsins að taka krossveð í norska skógarkettinum og tjaldvagninum. Annað mögulegt krossveð er síðan garðurinn og eiginkonan. Svarthöfði er sáttur við allar sínar lánalínur en vonandi fer ekki sparisjóðurinn á hausinn.
Blogg
Köttur með krossveð
08:07 › 7. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
