Ísland árið 2009 verður víst ekki eins hábölvað og af hefur verið látið. Þeir Geir H. Haarde og Össur Skarphéðinsson segja í það minnsta að við séum í raun að fara aftur til ársins 2005. Allavega að einhverju leyti og það ár var nú ekki svo slæmt: „sem þá var besta ár allra ára,“ segir Össur allavega á heimasíðu sinni.
Og hvers vegna skyldum við ekki fagna? Landsframleiðslan var í toppi. Lánakostnaður var í botni. Tekjur voru góðar og okkur virtust allir vegir færir. Gott ef Ísland var ekki örugglega á þeirri leið að verða ríkasta land í heimi.
Nú horfir kannski dálítið öðruvísi við. Ísland er ekki við það að verða ríkasta land í heimi. Og þó Ísland sé ekki heldur að verða fátækasta land í heimi hefur auður landsins heldur minnkað að undanförnu. Sömu sögu er svo að segja af velferð landsmanna. Nú er svo komið að það eina sem er ekki á uppleið virðist vera leigan, launin og atvinnustigið.
En þar erum við einmitt komin að kjarna málsins. Árið 2009 er auðvitað alveg eins og árið 2005, fyrir utan eitt. 2009 er illi bróðir 2005. Menn þurfa ekki að hafa horft lengi á sápuóperur (eða enn frekar kvikmyndir eða sjónvarpsþætti þar sem gert er grín að sápuóperum) til að gera sér grein fyrir því hvað er um að ræða. Rétt þegar áhorfendur eru orðnir þreyttir á því sem þeir gjörþekkja, eða framleiðendum finnst ástæða til að breyta til, nú eða enn frekar að gamall leikari sem ætlaði að slá í gegn í kvikmyndum er orðinn verkefnalaus og snýr aftur, þá er ekkert betra en að kynna til sögunnar illa bróður góðmennisins.
Og hvað er árið 2009 annað en illi bróðir 2005? Þjóðin er eins útlits, svona fyrir utan að þá voru engir mótmælafundir og engin pólitísk skemmdarverk. Þá var líka fullt af bjartsýnum Íslendingum að festa kaup á húseign út á hræódýr lán. Nú er fullt af svartsýnum Íslendingum sem óska þess heitast að losna við húseignirnar sínar með rándýru lánunum. 2005 skiptu Íslendingar út gömlu druslunum og fengu sér nýja fáka á kostakjörum. Nú vill fólk losna við fínu bílana og jafnvel fá gömlu druslurnar í staðinn. Það sem áður var gott er nú slæmt. Árið 2005 vildu allir eiga sitt húsnæði en nú vilja sífellt fleiri leigja.
Geir og Össur hafa kannski rétt fyrir sér þegar þeir segja að landsframleiðslan verði sú sama nú og árið 2005. Bara synd og skömm að svo margt annað skuli vera í miklu verri gír en áður var. En sennilega svipar árunum saman, svona eins og góða og illa bróðurnum, svona útlitslega séð.
Blogg
Illi bróðir ársins
08:07 › 6. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
