Hugsjónamenn eru til mikillar fyrirmyndar. Það er ekki hægt annað en að dást að þeim sem móta með sér heilsteyptar hugsjónir og eru reiðubúnir að berjast fyrir þeim, jafnvel lifa eftir þeim. Svarthöfði hefur kannski ekki alltaf verið heitasti hugsjónamaðurinn í gegnum tíðina en þeim mun meiri aðdáandi hugsjónamanna og -kvenna. Staðfestan og réttsýnin sem fylgja hugsjónum er hin mesta dyggð sem hægt er að hugsa sér. Að vísu eru hugsjónir ekki alltaf auðveldar í framkvæmd eins og dæmin sanna. Og einstaka sinnum verður hugsjónafólk að gera eitthvað sem utanaðkomandi kynni að þykja að brjóti gegn hugsjónum þeirra.
Viðskiptablaðið hefur óneitanlega verið einn helsti málsvari þess sjónarhorns sem kenna má við markaðs- og frjálshyggju. Blaðið hefur flutt fréttir af viðskiptalífi, efnahagsmálum og áhrifum stjórnvalda á þessa þætti. Óneitanlega hafa líka oft birst skrif í blaðinu þar sem ríkisafskiptum og ríkisrekstri er fundið allt til foráttu. Þess vegna kann sumum að þykja skringilega komið fyrir blaði frjálshyggjunnar þegar það er allt í einu búið að setja stóran hluta starfsmanna sinna á framfæri hins opinbera, búið að lýsa sig gjaldþrota, skipta um eigendur og telja sig óbundið af launagreiðslum til þeirra sem fengu ekki náð fyrir augum núverandi eiganda, sem er jafnframt fyrrverandi og núverandi ritstjóri blaðsins. Þetta kynnu einhverjir að segja að stangaðist á við hugsjónir frjálshyggjunnar.
Ekki eru minni áhyggjurnar sem sumir hafa af Morgunblaðinu, þessu málgagni hægriaflanna til margra áratuga. Málsvari frjálsra viðskipta og einkavæðingar er nú á opinberu framfæri. Rekið fyrir fé úr sjóðum ríkisbankans Glitnis meðan leitin mikla að nýjum hluthöfum stendur yfir. Leit sem átti að ljúka fyrir hátt í tveimur mánuðum en stendur enn yfir. Og meðan leitin að nýja hlutafénu frá hinum frjálsa markaði dregst á langinn er málgagn frjálshyggjunnar rekið jafnt fyrir sjálfaflafé og ríkisfé.
En þó vondir menn kunni að halda að þetta gangi gegn hugsjónum frjálshyggjunnar vita boðberar hennar sem er að svo er ekki. Eða dettur einhverjum í hug að Hannes Hólmsteinn Gissurarson, fremsti hugsuður frjálshyggjunnar á Íslandi hefði sætt sig við að vera ríkisstarfsmaður síðustu tuttugu árin og njóta góðs af ríkisstyrkjum um langt árabil ef þetta stangaðist á við hugsjónir frjálshyggjunnar? Að hugsjónir frjálshyggjunnar víki þegar fjár er þörf? Það getur ekki verið.
Blogg
Ríkisrekin frjálshyggja
08:12 › 28. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
