ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Rauða hættan

08:23 › 27. janúar 2009

Nú er Svarthöfði orðinn verulega hræddur. Nú er Svarthöfði alveg steinhættur að skoða nokkra þá vefsíðu þar sem kynni að vera að finna fáklætt kvenfólk, hvað þá að hann myndi láta sér detta til hugar að skoða síður þar sem er að finna allsbert kvenfólk - nú eða karlmenn ef út í það er farið. Svarthöfði veit nefnilega sem er að innan fáeinna daga mega þeir sem slíkt gera eiga von á heimsókn frá netlögreglunni. Jú, landsmenn góðir. Vinstri-græn eru á leið í ríkisstjórn og þá má búast við að ýmis af þeirra stefnumálum nái fram að ganga. Eða varla fer þessi hjartahreini og hugsjónaríki flokkur að mynda stjórn bara til að mynda stjórn.

Steingrímur J. Sigfússon verður náttúrulega fjármálaráðherra. Minna getur það ekki verið ef hann lætur forsætisráðherraembættið eftir til Jóhönnu Sigurðardóttur. Fjármálaráðuneytið er náttúrulega næstvaldamest allra ráðuneyta. Og hverju má búast við þegar Steingrímur er kominn með puttana í fjármálin? Skattar hækka og útgjöld aukast. Og í núverandi árferði þegar skuldir hins opinbera nema þegar sex til sjö milljón krónum á hvern Íslending, frá nýfæddum börnum til gamalmenna á grafarbakkanum, getur auðvitað ekkert blasað við nema þjóðargjaldþrot.

Nú. Hann Atli Gíslason hlýtur að verða dóms- og kirkjumálaráðherra. Og þá mega klámhundar landsins aldeilis fara að vara sig. Eða við hverju er að búast þegar femínistarnir taka völdin, sérstaklega þegar þeir eru karlkyns? Ekki getur það verið neitt gott. Innreið netlögreglunnar hefst og sennilega verður víkingasveit lögreglunnar skorin niður við trog á móti. Byssubófar og mótmælendur geta þá farið sínu fram meðan hart verður sótt að heiðvirðum aðdáendum hins kvenlega líkamsforms.

Og sennilega sendir hún Kolbrún Halldórsdóttir okkur öll á fjöll til að tína fjallagrös þegar hún verður orðin umhverfisráðherra. Ætli hún taki sig ekki til og láti loka álverum og rífa stíflur? Minna getur það vart verið í tilfelli flokksins sem barðist sem harðast gegn þessu. Eða ætla vinstri-græn að standa aðgerðalaus frammi fyrir orðnum hlut? Alla vega verða engin ný álver reist og hvað þá að fólk fái vinnu við þau.
Ekki líst Svarthöfða betur á að Ögmundur Jónasson verði utanríkisráðherra. Ísland úr Nató og herinn... umm, sleppum því. Ísland segir sig úr öllum bandalögum, nema við hin hundfúlu Norðurlönd og verður skilið eftir með öllu varnarlaust. Eða héldu menn að Íslendingar þyrftu virkilega bara á vörnum að halda gegn innlendu fjármálalífi? Og verst af öllu er að Ísland verður lýst kjarnorkuvopnalaust land og hafsvæðið líka.

Katrín Jakobsdóttir verður svo væntanlega gerð að menntamálaráðherra. Ég held að við vitum öll hvað það þýðir. Hér eftir verða skólabörnin okkar ekki látin lesa Íslendingasögurnar og Halldór Laxness, hvað þá Indriða G. Þorsteinsson og fleiri andans jöfra. Nú verða allir látnir lesa glæpasögur, sennilega með túlkunum bókmenntafræðingsins á ráðherrastóli.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?