ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Okkar Obama

11:51 › 21. janúar 2009

Lykillinn að bjargræði þjóðarinnar rúmast í tveimur orðum: Von og trú. Þetta eru afar klisjukennd hugtök sem eru oft misnotuð af misyndismönnum móðurmálsins, stjórnmálamönnum. Í gær stóð Svarthöfði á öndinni umvafinn von sem hafði ekki gert sig heimankomna í hugskotssjónum hans í mörg misseri.

Þrumandi hógværð Baracks Obama gagnvart fólkinu sveipar Svarthöfða leðurstamri gæsahúð. Hann er mannlegt mikilmenni, sem lofar því einu að hann muni gera allt sem hann geti fyrir fólkið, en um leið lýsir hann því bljúgur að hann muni gera mistök.

Svarthöfði fylltist fyrst mikilmennahrifningu þegar Davíð Oddsson tók völdin í Sjálfstæðisflokknum árið 1991 af hinum þurrausna Þorsteini Pálssyni. Löðrandi af sjálfsöryggi náði Davíð að hræra hjarta Svarthöfða, sem hafði brennst svo illilega áratuginn áður þegar logar verðbólgubálsins sleiktu hann stöðugt með hrjúfri tungu sinni, langa daga og dimmar nætur. Með Davíð kom það sem Gorbatsjov kallaði „Glasnost“ og „Perestrjoka“, eða opnun og breyting. Á þeirri rafmögnuðu stundu renndi Svarthöfða ekki í grun að Davíð ætti eftir að hrifsa til sín lýðræðið og láta samfélagið undirgangast hans eigin „Pravda“, sovéskan sannleika sem sannast sagna er lygi.

Eina opnun Davíðs var þegar hann opnaði gáttir heljar og hleypti dárum sínum að kjötkötlunum. Eina breyting Davíðs var þegar hann lagði dulu blekkingar yfir vit fólks. Veruleikinn varð sýndarveruleiki, rústir hvers mynda efsta jarðlag Nýja Íslands.

Obama er mikilmenni vegna þess að hann er venjulegur maður. Hann er maður fólksins, sátta og samlyndis. Þetta þætti ekki merkilegt nema vegna þess að forveri hans var maður kerfisins, stríðsins og misskiptingarinnar. Af þessu leiðir að mikilmenni þarf ekki að vera neitt stórmerkilegt í sjálfu sér. Það þarf bara að vera grænt laufblað í visnuðum skógi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er Obama okkar Íslendinga. Hann er maður fólksins, sátta og samlyndis - þar til annað kemur í ljós. Kjör hans eitt og sér gæðir þjóðina þeirri von og trú sem hún þarfnast, því það sannar að jafnvel hörðustu klíkur eru forgengilegar. Það er tilvistarsönnun breytingarinnar í stöðnuðu stjórnkerfi.

Sigmundur Davíð er holdgervingur vonarinnar, eins og Obama. Eins og fyrsti græðlingurinn að vori gefur tilvist hans ein til kynna að sumarið kemur á ný - að upp muni spretta heilu engin, blómaþekjurnar og berjamóarnir, og að lofther hunangsflugna í ofþyngd muni svífa um hamrandi á þeim með hljóðbylgjum druna sinna.

Öll bál kvikna af litlum neista. Sigmundur Davíð er okkar neisti. Hann er vonarneisti í leikrænu slökkvistarfi hinna valdasjúku.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?