ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Fimm mínútur í himnaríki

10:27 › 20. janúar 2009

Hvað getur maður gert á fimm mínútum? Hvað getur maður gert landi og þjóð til heilla á þeim tíma sem tekur að rísa úr sæti, móttaka hamingjuóskir og ganga upp á svið? Allt til þess eins að vera sagt að þetta sé allt í plati og síðan rekinn aftur í sæti sitt, frammi fyrir átta hundruð manns.

Svarthöfði getur ekki gert að því að finna til með Höskuldi Þórhallssyni sem í fáeinar mínútur naut þess að vera orðinn formaður Framsóknarflokksins. Finna til með unga manninum sem var lýstur réttkjörinn formaður flokks síns og var umkringdur hátt í þúsund manns sem klöppuðu fyrir honum allir sem einn. Þessar fáeinu mínútur stóð Höskuldur á hápunkti síns pólitíska ferils, í það minnsta enn sem komið er, og mátti horfa til þess að ef allt gengi upp yrði hann jafnvel næsti forsætisráðherra Íslands. Þess í stað var allt stoppað, klappið hljóðnaði og dauðaþögn féll yfir salinn þegar ljóst var að Höskuldur var bara formaður fyrir mistök, að hann hafði í raun tapað kosningunum. Höskuldur fór frá því að vera leiðtogi Framsóknarflokksins í að vera áfram bara þriðji þingmaður í kjördæmi sínu. Þegar Birkir Jón Jónsson var svo kosinn varaformaður var tryggt að Höskuldur yrði ekki einu sinni oddviti í sínu kjördæmi á næstunni nema eitthvað óvænt kæmi til.

(Áður en lengra er haldið finnst Svarthöfða við hæfi að benda á eitt. Formaður kjörstjórnar gerði afskaplega klaufaleg mistök sem eiga eftir að fylgja Framsóknarflokknum í dágóðan tíma og vera uppspretta margra brandara, fyndinna og leiðinlegra. Annars var eina afleiðingin af þessum mistökum sú að Höskuldur taldi sig vera orðinn formaður og gladdist mjög meðan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist hafa létt dálítið að þurfa ekki að leiða flokkinn út úr þeim ógöngum sem hann hefur ratað í. Af þessum orsökum sagði formaður kjörstjórnar af sér.

Einhvern veginn kemur Svarthöfða í hug að seinna dragi einhver framsóknarmaður þetta fram sem eitt dæmi þess að framsóknarmenn axli ábyrgð og segi af sér. Á sama tíma verður bent á að nær allir þeir sem tóku ákvarðanir sem áttu sinn þátt í hruni íslensku bankanna og íslensks atvinnu- og efnahagslífs eru enn við völd eða áfram í sínum stöðum og störfum. Allir nema þeir bankamenn sem misstu vinnuna með hruni bankanna.)

En hvað gerir maður á fimm mínútum? Hvað gerir maður á fimm mínútum þegar maður er réttkjörinn formaður Framsóknarflokksins og upprennandi forsætisráðherra þegar íslensk alþýða fylkir sér um Framsóknarflokkinn og leiðir hann aftur til valda? Sennilega ekki mikið meira en að taka við hamingjuóskum. Kannski eru fimm mínútur í himnaríki þess virði að verða fyrir áfalli þegar uppgötvast að allt er í plati. En þau geta ekki hafa verið létt sporin af sviði sigurvegarans niður í sæti taparans.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?