Spyrjum Erró
(Ort í tilefni 17. janúar 2009)
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega vera valdasjúkir,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega naga æruna af fólki,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega hlusta á Kammersveit Reykjavíkur,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega fá dómarasæti,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega viðra sig í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega gefa ríkisbankana,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega narra almenning til hlutabréfkaupa í De Code,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega svala fíknum sínum og stunda fjárhættuspil,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega falsa fréttir,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna mega þeir ekki
siga lögreglunni á saklaust fólk,
ef þeir láta okkur í friði?
Hvers vegna skyldu þeir ekki
mega missa völd sín,
ef þeir láta okkur í friði?
---
En vildum við að þeir
létu okkur í friði?
Spyrjum lögreglustjórann, spyrjum
hina innvígðu, spyrjum
úthlutunarnefnd listamannalauna,
spyrjum Erró!





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
