ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Brjálað barnaland

10:17 › 9. september 2008

Þegar Svarthöfði vill taka púlsinn á þjóðarsálinni veit hann hvert á að fara. Hann fer ekki í miðborg Reykjavíkur, þaðan af síður í Kringluna, hvað þá út í sveit og hlustar ekki á Rás 2. Nei, það er bara einn staður þar sem hann getur beintengst þjóðarandanum og fengið hann beint í æð. Það er hið svokallaða Barnaland.

Á spjallsvæði barnaland.is eru yfirleitt ekki stofnaðar færri en tvær umræður á mínútu. Þar er allt rætt milli himins og jarðar. Tilfinningin sem Svarthöfði fær þegar hann fer þangað inn er eins og þegar hann sat sem ungur drengur á kné móður sinnar þegar „kerlingarnar“ voru í heimsókn. Þar kynntist hann nýjum heimi, heyrði um verðbólgu, hálsbólgu, sinaskeiðabólgu, uppskriftir, skólamál, pólitík og allt annað. Stundum var hinn ungi Svarthöfði hins vegar beðinn um að fara inn í herbergi að leika sér. Þá vissi hann að ræða ætti eitthvað sem hann mætti alls ekki heyra.

Barnalandsmæður eru gríðarlega sterkur þrýstihópur í samfélaginu. Því er nauðsynlegt fyrir yfirvöld og fyrirtæki að kanna hug þeirra áður en miklar ákvarðanir eru teknar. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, nýtur vaxandi vinsælda hjá Barnalandsmæðrum í kjölfar þess að hann hjálpaði lömuðum bónda að endurheimta tæki sín. Þær eru hins vegar klofnar yfir Ómari Ragnarssyni, formanni Íslandshreyfingarinnar. Einhverjar þeirra telja hann ofsóknaróðan eða elliæran, þar sem hann telur sig hafa verið hleraður, en aðrar trúa á hann. Á Barnalandi má greina stuðning þjóðarinnar við Ómar í hnotskurn. Sumir einfaldlega trúa því ekki að hann sé nógu merkilegur til að vera hleraður. Niðurstaða umræðunnar var sú að það væri allt eins líklegt að Ómar hefði verið hleraður, út frá því að hann hefur látið til sín taka í umhverfismálum.

Á Barnalandi er talið fullvíst að O.J. Simpson hafi drepið konuna sína. Leikkonan Keira Knightley er alltof mjó og með persónuleika á við baun. Ólafur Ragnar Grímsson er æðislega sjarmerandi með fullkomið hár. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir átti ekki að fara í annað skipti til Peking á kostnað ríkisins.

Barnaland er vígvöllur ímyndarstríða. Það er besti mælikvarðinn á ímynd fólks og fyrirtækja. Mæðurnar eru nafnlausar og ræða hlutina jafnhispurslaust og í eldhúsinu heima. Sumar umræðurnar fá Svarthöfða hins vegar til að endurmeta æsku sína og móður. Þegar hann lúrir, eins og fluga á eldhúsveggnum, fær hann að heyra allt sem rætt er um. Nú er engin móðir lengur til að senda hann inn í herbergi að leika þegar umræðurnar komast á alvarlegt stig. Og sumar umræðurnar eru algerlega brjálæðislegar fyrir saklausa drengi og fágaða menn.

Nýverið las Svarthöfði tilfinningaþrungna uppljóstrun móður sem sagðist vera skotin í kvenkyns, en var ekki viss um að það væri í lagi, því viðfangsefni hrifningar hennar væri mun yngri. Auk þess sem það yrði erfitt að útskýra þetta fyrir börnunum. Hinar mæðurnar á Barnalandi eggjuðu ringluðu móðurina til afreka á ótroðinni slóð.

Svarthöfði getur aldrei vitað hvað kerlingarnar ræddu í eldhúsi móður hans þegar hann hafði verið sendur að leika. Nú hefur ímyndun hans hins vegar úr nógu að moða, og óhætt er að segja að þessi askja Pandóru hefði betur haldist lokuð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?