ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Bubbi kallinn!

09:45 › 26. september 2008

Söngvaskáldið Bubbi Morthens er einn af uppáhaldsmönnum Svarthöfða. Lífshlaup þessa konungs poppsins er einhvern veginn þannig að hann umbreytist stöðugt. Hann er næstum því eins og teiknimyndafígúran Barbapabbi sem gat með hugaraflinu breytt sér í næstum hvað sem er. Varla er til sá minnihlutahópur sem Bubbi hefur ekki holdgerst í. Í upphafi var hann barn og gekk í gegnum ákveðnar þrautir og ólst upp í blokk. Hann varð farandverkamaður og beitti hnífi sínum á fiska milli þess að hann dópaði, drakk og djammaði. Svarthöfði þekkti í þá daga hvorki haus né sporð á þessum villingi sem þvældist af einum stað á annan með gítar. Það var ekki fyrr en farandverkamaðurinn kom með hljómplötu að þjóðin tók eftir þessum syni sínum. Á ljóshraða ruku lög hans upp vinsældalista og allir sungu Ísbjarnarblús og lifðu sig inn í heim uppreisnarmannsins sem söng um vont auðvald og örlög lítilla manna. Rödd öreiganna small inn í þjóðarhjartað.

Barnið sem breyttist í uppreisnarmann hélt áfram á þróunarbrautinni sem tekur við af spottanum sem liggur á milli manns og apa. Nú skal skýrt tekið fram að Svarthöfði er alls ekki að líkja Bubba við apa. Bubbi fór úr klofstígvélunum og tók af sér svuntuna. Fiskihnífurinn fór á haugana. Trúbadorinn umbreyttist í poppstjörnu og fór að syngja um ástina. Dópið var ævinlega skammt undan og þjóðin sá poppara spretta fram. Hann gekk í hjónaband og auðvitað kom plata um þau ósköp. Hann fékk ímynd ástfangins fjölskylduföður. Öðru hverju spratt fram þjóðfélagsgagnrýni en þó tempruð. Hinn hvassi, óheflaði tónn hins þjáða verkamanns var horfinn. Og hann fór í meðferð. Bakkus var tekinn á beinið og Bubbi breyttist í bindindismann og seldi þá ímynd að vera afturbata. Það var einmitt í framhaldi þess að hann var misnotaður. Skemmtirit birti frétt sem bar þá ósmekklegu fyrirsögn: Bubbi fallinn! Hann upplifði þá niðurlægingu að vera misnotaður þar sem fallið átti einungis við um sígarettur. Hann varð fórnarlamb, fór í mál og Hæstiréttur úthlutaði hærri bótum en nauðgaðar konur fengu.

Popparinn var lengi vel ofan í lífi Bubba og hann söng um ástina. Þegar útrásarævintýrið hófst bárust þær fréttir að tryggingafélag hefði keypt réttinn að lögum hans. Bubbi breyttist úr stífmáluðum og uppdressuðum poppara í auðmann. Hann baðaði sig í ljóma eigin gulls og fjárfesti í hlutabréfum út og suður. Hinn íslenski Che Guevara var orðinn að auðjöfri sem eyddi tíma sínum í að spá í vísitölur hlutabréfa. Það fennti í spor uppreisnarmannsins á hermannaklossunum og við tók fágaður bísnessmaður á lakkskóm. Aðdáunin dvínaði ekki við þessa umbreytingu. Miðaldra konur og karlar sungu um stál og hníf, ást og loks skilnað. Rétt eins og það kom plata um ástina kom önnur um þá þjáningu sem fylgir hjúskaparslitum. En það var huggun harmi gegn að hann var ennþá auðugur. En mölur og ryð vinna gjarnan á veraldlegum hlutum. Allt sem fer upp, kemur aftur niður. Þegar vísitölur Mammons tóku að falla varð Bubbi eitt fyrsta fórnarlambið. Hann fór úr jakkafötunum og spariskónum og tók upp málstað fátækra, rétt eins og á uppreisnarárunum. Enn ein umbreytingin varð að veruleika. 

Bubbi var aftur orðinn venjulegur borgari og þurfti að fara af stað með gítarinn. Svarthöfði á allar plötur Bubba og hann dáist að þessum íslenska Barbapabba sem stöðugt gengur inn í ný hlutverk. Nú er fram undan að öreiginn, uppreisnarmaðurinn, poppstjarnan, auðmaðurinn og fórnarlamb hrunsins stígi enn eitt skrefið. Ríkisútvarpið hefur áttað sig á því að þetta er rödd sem þarf að heyrast annars staðar en á hljómplötum. Hann fær sinn eigin þátt á Rás 2 til að fjalla um hvað sem er. Svarthöfði vill meira. Senn styttist í að það þurfi að velja nýjan forseta í stað núverandi. Engin spurning er um arftakann. Það er auðvitað Bubbi kallinn!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?