Nú mega sko hinir vinsælu Moggabloggarar Jenný Anna Baldursdóttir, Stefán Friðrik Stefánsson, Ómar Ragnarsson og Ásdís Rán fara að vara sig. Svarthöfði ætlar að opna sína eigin moggabloggsíðu og blogga við hverja einustu frétt á mbl.is sem hann telur sig varða. Svarthöfði hefur rýnt í samfélagið í áratugi, er glöggur mannþekkjari og hefur nóg af skoðunum sem hann nennir ekki að liggja á lengur. Svarthöfði á erindi við alþjóð og verður því að sjálfsögðu að blogga eins og allir hinir. Þótt Svarthöfða skorti næmni Jennýar, skopskyn Ómars, þráhyggjukennda elju Stefáns og fegurð Ásdísar ætlar hann að skjóta þeim öllum ref fyrir rass á mettíma.
Björn segir að fylla þurfi skörðin: Nú er nóg komið Björn! Er ráðherra dómsmála gengin til liðs við myrkraöflin? Blasir það ekki við hverjum sem sjá vill að hverfi ofurlöggan Jói Ben. á braut ásamt sínum nánustu samstarfsmönnum á Suðurnesjum að landið mun standa eftir galopið fyrir dópsmyglurum, Vítisenglum og siðblindum austantjaldsmorðingjum? Þetta hyski óttast ekkert nema Jóa Ben. og nú er búið að flæma þessa alþyðuhetju burt vegna þess að hann er svo dýr! Það kostar pening að verja landið Björn! Og það átt þú að vita. Svo dettur ráðherranum ekkert gáfulegra í hug til að segja um þetta ófremdarástand sem hann hefur skapað annað en að það þurfi að fylla skörðin. Fylla þau með hverjum? Annars flokks fólki vegna þess að ofurlöggan er of dýr. Væri bara ekki réttast að Björn leysti deiluna með því að skilja eftir sig skarð við ríkisstjórnarborðið. Það skarð yrði þó í það minnsta auðfyllt.
Kynfæraaðgerðir vafasamar: Já, þetta hefur Svarthöfði nú alltaf vitað. Auðvitað er það galið og stórhættulegt að krukka í þessum líffærum sem skaparinn gaf okkur svo við mættum viðhalda mannkyninu. Og svo telja menn sig vera að gera fegrunaraðgerðir á æxlunarfærunum. Til hvers í ósköpunum? Þessi líffæri eru ekki fyrir augað og eiga ekki að vera það. Þau á að fela ofan í nærklæðunum nema rétt á meðan þau eru notuð í sínum náttúrulega tilgangi. Svarthöfði er sáttur við sína litlu, krumpuðu rækju eins og hún er og hefur aldrei látið sér detta til hugar að svara tölvupóstum frá öllu þessu fólki úti í heimi sem veit einhverra hluta vegna að tommurnar hjá Svarthöfða mættu vera fleiri.
Selfoss færðist til í skjálftanum: Jahá! merkilegt. Þarna er loksins komið eitthvað jákvætt við þessa bansettu landskjálfta á Suðurlandi. Best væri er hamagangurinn verði slíkur að Selfoss hristist bara frá landinu næst. Þá losnum við við þessa hvimleiðu og svokölluðu hnakkamenningu sem hefur gert unga fólkið okkar að landeyðum. Því mun sko ekki fylgja neinn skítamórall ef bærinn sem kallaði Skítamóral yfir okkur fer til Færeyja.
Goldfinger enn til umræðu: Ætlar þetta lið aldrei að þreytast á því að æsa sig yfir þessum súludansi? Hvar endar þessi vitleysa í lopapeysuliðinu í Samfylkingunni? Auðvitað hefur Svarthöfði megna skömm á því sem fram fer innan veggja súlustaðanna enda stendur hann bjargfastur í þeirri trú að kynfæri séu ljót og eigi ekki að vera til sýnis. Aldrei hefur Svarthöfði komið inn á svona búllu og vill sem minnst að þessu vita en er nokkuð að því að vesælir og graðir karlar eyði sínum fáu krónum þarna? Þeir dæma sig barasta sjálfir og við þurfum engin lög yfir þetta. Við verðum bara að losna við þennan ósóma úr urmæðunni og auðvitað er þessi viðbjóður best geymdur í iðnaðarhverfum í Kópavogi. Það er gott á þá sem búa í Kópavogi!
Lindsey lengi verið lesbía. Vil ég vita þetta? Nei! Af hverju er Mogginn að segja mér að Lindsay sé lesbía? Vill þetta virðulega blað þá ekki bara líka upplýsa mig um kynhneigðir þjóðþekktra íslenskra kvenna? Hvurslag della er þetta? Sjálfsagt veit ekki stúlkugreyið sjálf í hvorn fótinn hún á að stíga í þessum málum. Hún er með konu í dag, karli í gær og hver veit upp á hverju blessað barnið tekur á morgun. Svona lagað á hreinlega ekkert erindi við venjulegt fólk. Hver er svo þessi Lindsay eiginlega? Væntanlega leikkona, söngkona eða bara fræg fyrir að vera fræg. Umboðsmaður hennar ætti nú að banna henni að stíga fram sem lesbía. Þetta hlýtur að vera vont út á við og draga úr áhuga karlkynsins á henni. Og gengur ekki allt þetta kynþokkabrölt í þessum skjátum út á að afla sér vinsælda hjá drengjum með hvolpavit? Maður spyr sig. Ef ég væri ósmekklegur Moggabloggari myndi ég segja að þarna færi góður biti í hundskjaft en ég eftirlæt öðrum hér slíkan ósóma.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
