Svarthöfði hefur alla sína tíð verið ómannblendinn og feiminn. Hann hefur því virkað frekar lokaður, hrokafullur og jafnvel bara hrútleiðinlegur. Eiginlega verður það að teljast kraftaverk að Svarthöfða hafi tekist að krækja í Svarthöfðu á sokkabandsárunum en hann hafði að vísu ekki döngun í sér til þess fyrr en að hafa drukkið frá sér alla feimni og um leið allt vit.
Líf Svarthöfða hefur tekið stórkostlegum stakkaskiptum á tölvuöld og nú er hann í stöðugum og miklum samskiptum við fólk alla daga án þess að roðna, stama og fæla viðmælendur frá sér með köldu viðmóti. Tölvupósturinn var fyrsta skref Svarthöfða í átt til mannfólksins en hann var nokkuð fljótur að tileinka sér þann góða sið að koma á sambandi við annað fólk með þessum rafrænu sendibréfum. Tæknibyltingin hélt svo áfram að létta lund og líf Svarthöfða þegar hann kynntist samskiptaforritinu MSN en þar spjallar hann daglangt og fram á nótt við allskonar fólk. Hann þarf ekki lengur að standa upp úr sætinu sínu í vinnunni og hrella vinnufélagana með drungalegri nærveru sinni. Heldur leikur hann bara á als oddi á MSN og talar þar við samstarfsfólkið um verkefni dagsins og allt milli heima og geima.
Samband Svarthöfða við börnin hefur líka styrkst til muna eftir að hann fór að leika hressa kallinn á MSN-inu og nú getur hann rifist við Svarthöfðu sína á MSN án þess að hrella nágrannana með öskrum og látum. Svarthöfða hefur alltaf verið illa við að tala í síma enda á hann það til að tafsa og mismæla sig þegar óöryggið yfirtekur hann í erfiðum símtölum. Nú sendir hann bara SMS og málið er dautt.
Þrátt fyrir að eiga erfitt með að tjá sig í mæltu máli hefur Svarthöfði skoðanir á flestu og hefur stundum verið við það að springa af þörf fyrir að koma skörpum hugsunum sínum og þjóðfélagsgreiningum á framfæri. Spjallvefurinn málefnin.com var því sannkallaður hvalreki fyrir Svarthöfða en þar sækir hann reglulega líflega málfundi í sýndarveruleikanum og dregur hvergi af sér í hröðum umræðum og deilum.
Svarthöfði náði síðan enn betri fótfestu í þjóðmálaumræðunni þegar Morgunblaðið gerði almenningi kleift að blogga á mbl.is. Svarthöfði hefur komið sér notalega fyrir þar í skjóli nafnleysis og lemur á spilltu stjórnmálafólki og alls kyns vitleysingum með rafrænum hrísvendi sínum. Svarthöfði sér vel fyrir sér að með þessum framkomuæfingum á vefnum muni hann þegar fram líða stundir treysta sér til þess að bjóða sig fram til þings. En kannski er vissara að bíða þangað til Alþingi verður kallað saman með fjarfundabúnaði og hann geti þá setið heima með Frankenstein-grímu og vélað um setningu laga og reglugerða.
Svarthöfði á fleiri örugg athvörf í undraheimi netsins og þegar hann verður leiður og pirraður á Svarthöfðu heldur hann grimmt framhjá henni á einkamál.is. Þar á Svarthöfði margar góðar hjákonur sem spjalla við hann um holdsins lystisemdir. Samviska Svarthöfða er þó hrein þar sem framhjáhald í gerviveröld telst ekki með og sumar konurnar vita ekki einu sinni að Svarthöfði er Svarthöfði. Sumar konurnar vilja að vísu ólmar hitta Svarthöfða í raunheimum. Að vísu gegn vægu gjaldi sem Svarthöfða finnst nokkuð kúnstugt. En feimnin aftrar honum sem betur fer frá því að stíga frá skrifborðinu og kynnast þessum vinkonum sínum betur.
Og ekki er allt upp talið enn. Vinavefurinn facebook.com er rúsínan í pylsuendanum en eftir að Svarthöfði kom sér fyrir þar hefur hann eignast um 200 vini. Og þeir eru sko ekki af verri endanum. Fyrir öld internetsins átti Svarthöfði bara einn vin. Traustan skólafélaga úr grunnskóla en nú telur hann alls kyns fyrirmenni til vina sinna. Fræga fólkið sem myndi ekki líta við Svarthöfða úti á götu tekur honum sem jafningja á Facebook og leyfir honum að fylgjast með hvað það er að hugsa og sýsla frá degi til dags.
Guði sé lof fyrir Facebook, Moggabloggið, Málefnin, Einkamál, MSN, e-mail og SMS sem tengdu týnda sál við mannfólkið og gáfu innihaldslausu og einmanalegu lífi tilgang og inntak.
Blogg
Traustir sýndarvinir
09:51 › 18. september 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
