ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Dómsdagur seinna!

12:59 › 11. september 2008

Svarthöfði átti margar þrúgandi andvökunætur í æsku enda lagðist hann til hvílu á hverju kvöldi nánast fullviss um að kjarnorkustríð myndi verða til þess að hann vaknaði aldrei framar. Hinn ungi Svarthöfði þurfti því enga sturlaða vísindamenn með einhvern geggjaðan öreindahraðal til að hræða úr sér líftóruna. Mikið skilur Svarthöfði þó vel blessuð börnin, sem hafa heyrt af fikti snillinganna hjá CERN í fréttum og óttast nú að fá ekki að glíma við stýrivexti og verðbólgu í framtíðinni eins og foreldrar þeirra nú.
„Æðrist eigi,“ sagði Svarthöfði við Svarthöfðaungana sína og fullvissaði þá með sannfærandi rökum hins lífsreynda að heimurinn væri ekki í neitt meiri hættu nú en á þúsaldarmótunum þegar siðmenningin átti að hrynja síðast.

Ólíkt vitstola Barnalandskerlingum, af báðum kynjum, gleðst Svarthöfði mjög yfir tilraunagleði liðsins hjá CERN og bíður spenntur eftir stórkostlegum niðurstöðum tilraunarinnar sem mun ef til vill færa okkur mögnuð svör við spurningum um hinstu rök tilverunnar. Þar fyrir utan hefur Svarthöfði slíka tröllatrú á mannsandanum og hugviti upprétta apans, sem sigraði heiminn með því að fatta að nota þumalputtana, að hann hefur ekki minnstu áhyggjur af því að samansafn mestu vitringa heims hafi í hyggju að steypa okkur öllum í glötun svarthols. Stjórnmálamenn og kjörnir leiðtogar hafa farið fremstir í hópi þeirra sem leynt og ljóst stofna öllu jarðlífi í hættu þannig að við hlið þess skríls eru sjeníin hjá CERN mestu meinleysisgrey.

Annars veit Svarthöfði svo sem ekkert að ráði um CERN annað en það sem hann las í skáldsögunni Englum og djöflum sem er skrifuð af sama sögufalsara og varð milljóner með Da Vinci lyklinum. Sé eitthvert mark takandi á þessum Dan Brown er CERN alveg hreint æðislegt apparat og bröltið innan þeirrar stofnunar er með því áhugaverðasta sem samtíminn býður upp á. Vissulega var margt miður gott vélað hjá CERN í bókarkorninu en fyrirbærið engu að síður sjarmerandi.

Ef vísindagengi CERN er aðeins að leita svara við ákveðnum spurningum er ekkert að óttast og heimsendir varla í sjónmáli fyrr en eftir skrilljón ár þegar sólin mun gefast upp á að knýja sólkerfið áfram og tútnar þá út með mjög svo fyrirsjáanlegum afleiðingum áður en hún skreppur saman í einmitt svona svarthol sem hefur undanfarið ært óstöðugan fyrrverandi þingmann, netvæluskjóður og blessuð börnin.
Öll þessi hræðsla og sá skyndilegi áhugi sem fólk fær á því að ríghalda í blessaða líftóruna þegar það stendur frammi fyrir dauðanum er því hjóm eitt nema CERN hafi þann leynda tilgang að leysa öll helsu vandamál Íslendinga og um leið mannkyns alls. Tilvera okkar, þetta undarlega ferðalag, er nefnilega svo öfugsnúin að heimsendir er í raun það eina sem getur leyst okkur frá alþjóðlegri efnahagskreppu, krónísku stríðsbrölti og sjúklegri rányrkju sem gengur jafnt og þétt á umhverfið og ógnar undirstöðu alls lífs á jörðinni miklu frekar en einhver öreindahraðall sem enginn fattar hvort eð er.

Þær ógöngur sem við erum komin í kalla nefnilega fyrst og fremst á endurræsingu alls kerfisins. Ástandið í heiminum er svipað því og þegar maður situr í sakleysi fyrir framan tölvuna sína þegar allt Microsoft-ruslið á henni frýs. Eða „krassar“ eins og tölvunördarnir orða það. Við erum löngu búin að „krassa“ og það eina sem getur komið á jafnvægi er að „ríbútta“ eins og tæknimennirnir segja. Þegar tölvan frýs þarf að taka hana úr sambandi og láta hana endurræsa sig og raða öllu draslinu upp á nýtt. Og það er klárlega kominn tími á að taka heiminn úr sambandi og byggja allt heila klabbið upp frá grunni með 0 prósent verðbólgu, 0 prósent stýrivöxtum, engum undirmálslánum og alls engri krónu. Kannski munu þeir hjá CERN ramba á þessa lausn í fikti sínu og þá er óþarfi að fara á límingunum. Þegar við hverfum öll á braut með okkar delluverk verður hægt að stinga aftur í samband og upp mun rísa nýr og betri heimur eins og okkar forna trú spáir fyrir um að loknum Ragnarökum. Vituð þér enn eða hvað?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?