ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Birtíngur og Pollýanna

08:50 › 1. september 2008

Við lifum í besta mögulega heimi. Ef hlutabréf falla er það leiðrétting. Ef krónan fellur, er það líka leiðrétting af óviðráðanlegum ytri ástæðum, líkt og Guðs vilji sé að verki. Ef verðlag hækkar er það líka vegna ytra valds. Við lifum í besta mögulega heimi, eins og Leibniz sagði á sínum tíma, því hörmungar geta aðeins orðið til í ríki algóðs almættis ef þær eru leið að bestu niðurstöðunni.


Forsætisráðherrann okkar, Geir H. Haarde, situr eins og leiksoppur örlaganornanna. Allt sem hann gerir er að undirbúa mögulegar aðgerðir við áföllum sem kunna að dynja á bönkunum. Hvað sem gengur á er hann valdalaus, því þessu var ætlað að gerast. Hann er eins og Birtíngur í sögu Voltaires, sem upplifir hverja hörmungina á fætur annarri, en allt er á réttri leið, því það er engin önnur leið.


Pollýanna hét stúlka, sem lét ekki á sig bíta þótt á móti blési. Pollýanna hafði þann einstaka eiginleika að finna gleðina í öllum aðstæðum.

"Hér er engin kreppa," sagði Ingibjörg Sólrún í viðtali við Viðskiptablaðið á föstudag. "Einungis þriðjungur fyrirtækja hefur lent í vandræðum með að fjármagna sig." Glasið er því ekki hálftómt, því fer fjarri, heldur rúmlega hálffullt. Það er einstaklega gleðilegt.

Daginn áður en viðtalið birtist var rúmlega 400 manns sagt upp störfum. En hins vegar var ekki öllum öðrum sagt upp. 177 þúsund manns var ekki sagt upp störfum. Það er einnig stórkostlega gleðilegt.
Meira að segja þeir sem misstu vinnuna ættu að sjá ástæðu til að kætast. Hver vill ekki aukinn frítíma? Þeir geta eytt öllum dögum með fjölskyldunni. Jafnvel sparað sér leikskólapláss. Þeir gætu hætt að panta pítsur og byrjað að borða kartöflur, sem eru hollari. Hver veit nema að þeir fari að hreyfa sig meira þegar þeir hafa misst bílinn í hendur SP fjármögnunar? Það er hollt. Og þegar þeir missa húsið á uppboði, geta þeir varið dögunum í göngutúra og jafnvel tekið svolítinn lit. Hvað er fallegra en börn í útiveru með rjóðar kinnar í kuldanum?


Gleðileikur Pollýönnu er einstaklega hollur börnum. Þau læra að sjá gleðina í ömurleika sem þau geta ekki breytt. En það er verra ef fullorðnir umbreyta áföllum í gleði, þegar þeir sjálfir bera ábyrgð á því að koma í veg fyrir áföllin. Þeir eiga ekki að vera eins og strútar í stríði.
Svarthöfði kemst ekki hjá því að hugsa, hvort utanríkisráðherrann hafi verið í útlöndum sem endranær þegar viðtalið var tekið við hana. "Hér er engin kreppa," segir Ingibjörg Sólrún, sem stödd er í útlöndum.


Að mati Svarthöfða er sennilegasta skýringin sú að Ingibjörg hafi verið erlendis, frekar en að hún sé gjörsamlega firrt allri ábyrgð á hörmulegri stöðu heimilanna í landinu sem fer hratt versnandi í 14,5 prósent verðbólgu, hrapandi fasteignaverði og handrukkaravöxtum bankanna. Það væri eftir öllu. Þegar krónan féll á Íslandi og kreppa hófst á landinu var Geir í sínu Eldorado. Þegar uppsagnir dundu yfir fyrir mánaðarmót var Geir í Grikklandi. Sprikklandi.
Það endar þó með því að Pollýanna áttar sig á því að hún er fullorðin og Birtíngur horfir út um gluggann og fattar, að maður verður að rækta garðinn sinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?