Svarthöfði tók andköf þegar hann las um lífsháska Bubba Morthens og Páls Magnússonar útvarpsstjóra í DV í gær. Sjálfur er Svarthöfði einlægur aðdáandi Bubba en þá helst vegna gulltíma goðsins þegar hann framleiddi reggíplötur eins og innfæddur Jamaica-íbúi. Þá býr Svarthöfði einnig við þau frábæru forréttindi að hafa eingöngu aðgang að RÚV og því greiðir hann afnotagjöldin brosandi í gegnum þykkan, og á stundum súrefnislausan hjálminn.
Það sem vakti gladdi Svarthöfða voru einnig þau gömlu og góðu sannindi að hetjur rísa og falla á ögurstundu. Sjómaðurinn Heimir Freyr Geirsson tók líf þeirra félaga í sínar hendur og sigldi fari þeirra örugglega upp í sjóbrotið sem lamdi á þeim með sínu alkunna miskunnarleysi. Heimir er nefnilega hvunndagshetja hafsins. Hann barmar sér ekki þegar Ægir konunungur ber á sjófarendum líkt og refsivöndur ríkistjórnarinnar gerir gagnvart alþýðu á krepputímum.
Það vakti þó athygli að Bubbi Morthens, sem hingað til hefur sungið alþýðusöngva, ætlar aldrei að stíga ölduna aftur. Hetjan virðist hafa afhjúpað heigulinn í þetta skiptið. Á meðan Bubbi söng um stúlkur sem stara á hafið þá kemur hann sjálfur ekki nær því en svo. Í myndbandi af svaðilförum þeirra félaga sést Bubbi kveinka sér og væla yfir nokkrum öldum sem yfir hann gengu. Kannski var FL-Group-tapið nógu mikið ævintýri fyrir söngvarann sem negldi næstum fimmta naglann í kistuna sína þennan örlagaríka mánudag.
Í viðtali var Páll Magnússon hinn rólegasti. Hann sagði reynsluna óþægilega, þá helst vegna þess að tólf ára sonur hans var um borð. Það skiljum við öll. Páll veit líka að það eru nokkrir öruggir póstar í lífinu. Þó þeir séu síbreytilegir á milli þjóða þá eru sannindin þrenn: þú borgar skatta, síðan afnotagjöld og að lokum deyrðu.
Þess vegna þakkar Svarthöfði Heimi sérstaklega vel fyrir. Því hver veit hversu margar reggíplötur hefðu ekki fengið að sjá dagsins ljós ef Bubbi hefði neglt síðasta naglann í kistuna á botni hafsins. Eða hversu mörgum krónum hefði RÚV orðið af ef Páll Magnússon væri allur.
Að vísu er Svarthöfði jafn raunsær og stofnfjáreigendur SPRON. Hann veit að það kemur maður í manns stað. Og alltaf tapar lítilmagninn hvernig sem fer. En það er gott að hlusta á Bubba syngja reggí og horfa á RÚV á meðan krónurnar fuðra upp eins og verðbréfamarkaðir hér á landi. Þakka þér kæri Heimir.
Blogg
Hvunndagshetja hafsins
14:41 › 7. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
