ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Skál, Kínaskál

09:00 › 27. ágúst 2008

Svarthöfði er, þrátt fyrir þunga lund í kreppunni, eindreginn aðdáandi íslenska handboltalandsliðsins, og stefnir að því að vera í fremstu röð á Arnarhvoli þegar hetjur okkar verða heiðraðar. Við tilhugsunina um væntanlegan þjóðfund hríslast gleðistraumur niður bakið. Silfurmenn Íslands á stalli og þjóðin við fótskör þeirra.

Það er þó eitt sem veldur Svarthöfða undrun og jafnvel hugarangri. Helstu ræðumenn verða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sitjandi forsætisráðherra, og Hann Birna kristjánsdóttir borgarstjóri í Reykjavík. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er ekki á meðal þeirra sem ávarpa silfurhetjurnar. Það er í sjálfu sér skiljanlegt að Sjálfstæðisflokkurinn leyfi honum ekki beinan aðgang að þjóðinni. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og forráðamaður ríkisstjórnarinnar, lagði þá línu að forsetinn ætti ekki að vera að þvælast fyrir æðstu ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins á tyllidögum.

Þannig var það líka við hin ýmsu atburði heimastjórnarafmælisins. Forsetinn var fjarri góðu gamni en Davíð ævinlega veislustjórinn. Þetta hlutverk hefur hann haft með höndum síðan hann tók á móti heimsmeisturunum í bridds og drafaði svo eftirminnilega: Skál, Bermúdaskál. Þessi orð eru fyrir löngu orðin sígild í sögunni. Þá er þjóðinni minnsstætt hve erfitt Davíð átti með það við þingsetningu að hvetja til og hrópa ferfalt húrra fyrir forsetanum.

Í samræmi við stefnu Davíðs verður Ólafi Ragnari ekki hleypt að á Arnarhvoli í dag. Þorgerður Katrín mun af alþekktum þokka sínu mæra hetjur vorar og koma fram sem sameiningartákn þjóðar í sigurvímu. Þá mun stíga á stokk Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og flytja lofgjörð sína. Svarthöfði áttar sig að vísu ekki á því af hverju borgarstjórinn kemur þarna inn í dagskránna. Var Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, ekki á lausu eða sveitarstjórinn í Bláfjallabyggð? Líklega ekki.

Auðvitað heldur Sjálfstæðisflokkurinn forsetanum frá hátíðinni í miðbænum. Þannig er hann trúr þeirri stefnu sinni að gera forsetaembættið óþarft. þes utan er auðvitað óeðlilegt að forsetinn sé mikið á almannafæri. Hann á að halda sig á Bessastöðum fjarri þjóðinni og hengja orður á hetjurnar í sem mestum kyrrþey.

Viðbúið er að tugþúsundir leggi leið sína í miðbæ Reykjavíkur þar sem íþróttamálaráðherrann og borgarstjórinn baða sig í ljómanum af hetjunum. Stærsta spurningin er þó af hverju Davíð Oddsson fær ekki sinn sess á Arnarhvoli. Hefði ekki verið eðlilegt að hann héldi eina af sínum frábæru ræðum. Skál, Kínaskál.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?