ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Fjárhagslegur Jesús

09:23 › 26. ágúst 2008

Svarthöfði hefur reynt að lifa eftir fordæmi Jesú Krists, jafnvel þótt hann sé ekki strangtrúaður maður. Jesús gaf nefnilega gott fordæmi um hvernig ætti að hegða sér siðlega gagnvart öðrum, alveg óháð öllum himnaríkjum og helvítum. En eins og Svarthöfði hefur fundið á eigin skinni er Ísland nútímans ekki góður vettvangur fyrir fullkomna hegðun og góðmennsku Jesú.

Svarthöfði tekur einn dag í einu, eins og frelsarinn. Þetta heilbrigða hugarfar hefur hins vegar reynst vera hans helsti Akkilesarhæll. Hugarfarið meinar Svarthöfða um að býsnast yfir ýmsum fjárhagslegum atriðum og fyrir það hefur honum verið harkalega hegnt. Svarthöfði klárar yfirleitt allt fé sitt í einhverju havaríi sem fylgir því að lifa fyrir daginn í dag. Hann hefði betur hugsað í mánuðum, þar sem hann fær mánaðarlegar tekjur, því seinnipart hvers einasta mánaðar fer að dimma yfir dögunum. Fjárhagslegt frelsi fer fyrir bí og hælbítarnir þefa hann uppi.

Svarthöfði heldur þó áfram að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Þannig hefur hann sokkið, dag fyrir dag, dýpra ofan í yfirdrátt hjá bankanum. Slík lán eru á meira en handrukkaravöxtum, eða heilum 25% á ári. Eðlilegt framhald af því að lifa fyrir einn dag í einu er að sökkva enn dýpra, enda er heildræn hugsun til framtíðar ekki kjarninn í lífsspeki Jesú.

Það er erfitt að vera fjárhagslegur Jesús. Þegar Intrum sendir harðort hótunarbréf til Svarthöfða, með tvöföldum handrukkaravöxtum, er andsvar hans einnig innblásið af fordæmi frelsarans. Svarthöfðinn býður hinn vangann. Svo heldur hann áfram að láta hverjum degi nægja sína þjáningu.
Það er ekki þannig að Svarthöfði spanderi í vitleysu. Hann hefur sjálfur ímugust á musteri mammons og myndi ganga berserksgang í Kringlunni, eins og frelsarinn gerði á markaðstorginu, ef Messíasarheilkenni hans væri á sjúklegu stigi.

Svarthöfði hefur þann annmarka fram yfir Jesúm að hann býr ekki í foreldrahúsum. Því þarf hann að borga af tugmilljóna króna láni sem hefur yfir 20% vexti, að viðbættri verðtryggingu. Húsnæðislánið hans hefur hækkað um þrjár milljónir á einu ári vegna gengislækkunarinnar og verðbólgunnar. Það gerir átta þúsund krónur á dag. Á sama tíma hefur orðið dýrara að borða. Því skiptir engu máli að Svarthöfði skuli vera eins neyslugrannur og Jesús og fari einungis fram á að sinna grunnþörfum sínum um þak yfir höfuðið og mat í belginn.

Á undarlegan hátt kom það Svarthöfða á óvart þegar örlög hans urðu ljós á dögunum. Hann á sér aðeins von í því að annar frelsari stígi fram og reisi hann frá fjárhagslegum dauða. Svarthöfði hefur nefnilega verið krossfestur af bönkunum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?