ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Leyndarmálið og handboltinn

10:46 › 21. ágúst 2008

Svarthöfði hefur leyst gátuna miklu um lögmál velgengninnar. Það gerði hann þegar Ólafur Stefánsson, fyrirliði okkar sigursæla handboltalandsliðs, veitti þjóðinni innsýn í lögmálið. Eftirfarandi orð Ólafs eftir sigurleikinn gegn Pólverjum ætti að meitla í stein: „Það sem fólk getur tekið með sér eða lært af er að ef maður hugsar bara jákvætt - við gerðum það. Allt svona - neikvæðni *bíb* sem því fylgir og allt, bara, ekki leyfa því að gróa. Bara að vera ógeðslega pósitívur, sérstaklega þegar maður hugsar um hvað maður er að fara í.“

Ólafur veitti okkur dýrmæta innsýn í Leyndarmálið, það sem kallað hefur verið The Secret. Í ritningu Leyndarmálsins hermir að lausnir á vandamálum manna og leiðin til stórkostlegrar velgengni sé einföld. Þú þarft einungis að hugsa um lausnina og takmarkið. Ef Svarthöfði vill vinna stóra pottinn í lottóinu þarf hann bara að hugsa jákvætt um raungervingu þess atburðar. Þótt Svarthöfði vilji síst til þess hugsa, fylgir einn böggull skammrifi: Hvað ef einhver annar hugsar jákvætt um að vinna í lottóinu? Lausnina fundu taílensk hjón í Fellahverfinu. Þau hugsuðu jákvætt um að aðrir myndu ekki vinna í lottóinu. Þar að auki hafa búddistar árþúsunda reynslu í að sitja og hugsa, allt frá því Siddharta Gautama Buddha hugsaði sig inn í alsælu. Þrásetur Svarthöfða og forvirk sigurvíma fóru halloka.

Forsætisráðherrann okkar hefur markvisst beitt Leyndarmálinu á efnahagsvandann. Þótt hann hafi virst aðgerðalaus á yfirborðinu, sökum þess að hann gerir ekkert áþreifanlegt, veit Svarthöfði leyndarmál hans. Geir situr og hugsar jákvætt. Hann getur ekki leyft sér að horfast í augu við fátækt og gangast við raunveruleika hrapandi efnahagslífs, því þá vinnur hann gegn Leyndarmálinu með því að hugsa neikvætt.
Menn hafa ranglega gagnrýnt Geir fyrir að gera ekki neitt. Allan þennan tíma hefur hann þaulsetið við að hugsa jákvætt um krónuna, hlutabréfamarkaðinn, fasteignamarkaðinn og Ísland í heild sinni. „Allt er í stakasta lagi,“ segir hann, og sjá, Leyndarmálið hefst handa við að láta það rætast.

Vopnaður vitneskju Leyndarmálsins getur enginn láð Ólafi F. Magnússyni, fráfarandi borgarstjóra, að hafa verið andsnúinn Bitruvirkjun. Þetta nafn býður hreinlega upp á neikvæðni.

Það er líka rétt sem Ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, hefur tönnlast á síðustu mánuði. Það má ekki tala í neikvæðum tón um fasteignamarkaðinn. Þá eykst bara lægðin á honum. Seðlabankinn og greiningadeildirnar eru með samsæri gegn fasteignamarkaðnum með því að spá lækkandi fasteignaverði. Enda hefur það ræst. Ekki nóg með að það sé hættulegt að tala hann niður, heldur er komið á daginn, að það er líka stórhættulegt að hugsa hann niður.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?