Matthías Johannessen skáld upplýsir á vefsíðu sinni að Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, hafi hinn 2. júlí 1998 trúað Styrmi Gunnarssyni, sem þá var meðritstjóri Matthíasar á Morgunblaðinu, fyrir viðkvæmu einkamáli forsetafrúarinnar, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, og fjölskyldu hennar. Orðrétt segir Matthías í dagbók sinni 3. júlí 1998:
„ … Davíð hafði aftur á móti verulegar áhyggur af öðru máli. Hann sagði að það hefði komið 15 milljón króna reikningur í skrifstofu sendiherra Íslands í Washington sem fyrsta greiðsla fyrir læknismeðferð forsetafrúarinnar í Seattle. Enginn hefði minnzt á þetta einu orði og þeir Halldór Ásgrímsson vissu ekki hvernig með skyldi fara. Ef neitað yrði að greiða þá yrðu þeir úthrópaðir sem illmenni og yrðu að segja af sér, en ef greitt væri kæmi að sjálfsögðu að því að slíkar greiðslur þyrfti einnig að inna af hendi fyrir þá sjúklinga aðra, sem minna mega sín. Hann ætlar víst að láta Tryggingastofnunina kanna þetta mál til hlítar og ræða það síðan við forystumenn stjórnarandstöðunnar svo að hann sitji ekki uppi með hneykslismál að lokum. Samfylking í þessu máli sé eina ráðið til að komast að einhverri niðurstöðu, svo óþægilegt sem þetta væri. Þetta er að sjálfsögðu á fárra vitorði eins og margt annað í stjórnsýslu okkar sem bezt er að hafa sem fæst orð um. En sendiherra Íslands í Washington, Jón Baldvin Hannibalsson, var víst fljótur að senda reikninginn heim til Reykjavíkur og vísa ákvörðunum frá sér til þeirra háu herra sem landinu stjórna.”
Nú hefur Páll Torfi Önundarson læknir, en hann annaðist Guðrúnu Katrínu í þessum veikindum hennar, upplýst í samtali við Vísi 18. ágúst 2008, að allt sé þetta á misskilningi byggt hjá rægikörlunum, Davíð, Styrmi og Matthíasi. Sérstök nefnd innan Tryggingastofnunar ríkisins hafi fyrirfram samþykkt læknismeðferðina í Seattle og stofnunin hafi greitt kostnaðinn rétt eins og í tilvikum annarra sem á þurftu að halda. Mistök af hálfu spítalans hafi gert það að verkum að reikningurinn var sendur á sendiráðið í Washington en ekki beint til Tryggingastofnunar.
„Þetta er mjög dýr meðferð og hún varð dýrari í tilfelli Guðrúnar Katrínar, vegna þess að hún fékk mjög illskæða lungnabólgu, lenti á gjörgæsludeild og varð mjög veik af því mjög lengi. Því hækkaði þessi reikningur,“ segir Páll í samtalinu og þvertekur fyrir að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað eins og lesa má út úr dagbókarfærslu Matthíasar. „Þetta var allt saman með eðlilegu samþykki, nákvæmlega eins og við gerum fyrir Pétur og Pál. Guðrún Katrín fékk ekki neina sérstaka VIP meðferð umfram aðra. Allir Íslendingar eiga rétt samkvæmt landslögum, sem þessir ágætu herrar hafa sett á Alþingi, á bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á í heiminum. Hún fékk þá meðferð sannanlega en það eru aðrir Íslendingar að fá líka sem eru í sambærilegri stöðu,“ segir Páll Torfi í samtalinu við Vísi.
Eftir stendur sú staðhæfing Matthíasar Johannessen að forsætisráðherra Íslands hafi farið með viðkvæmar trúnaðarupplýsingar forseta Íslands og fjölskyldu hans til ritstjóra Morgunblaðsins, Styrmis Gunnarssonar, rætt um réttmætan lækniskostnað forsetafrúarinnar sem hneykslismál og gefið í skyn að hann hygðist ræða á þeim grundvelli við forystumenn stjórnarandstöðunnar.
Styrmir kom þessu síðan til Matthíasar sem aftur færði óhróðurinn í letur. Allt hvíldi þetta á vanþekkingu rægikarlanna sem nærðist á illum hug þeirra gagnvart forsetanum, Ólafi Ragnari Grímssyni. Sjálfsagt hefur Davíð Oddsson ekki gert sér grein fyrir að þessi níðskældni myndi opinberast með þessum hætti í óbeisluðum skrifum skáldsins, en þarna er að finna sterka vísbendingu um vinnubrögð hans í fleiri málum.
Blogg
Níðskældni afhjúpuð
11:20 › 19. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
