ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Læknar og launráð

17:18 › 14. ágúst 2008

Innan við eitt prósent borgarbúa kann skil á öllum þeim meirihlutum og borgarstjórum sem stýrt hafa þessu stærsta sveitarfélagi landsins frá því að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðtogi sjálfstæðismanna, setti stoltur á sig borgarstjórakeðjuna með fulltingi Björns Inga Hrafnssonar, fyrrverandi framtíðarleiðtoga Framsóknarflokksins. Þá var sólríkur dagur og sól í sinni. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, missti þá vinnuna ásamt aðstoðarmanni sínum en fór á biðlaun.

En gæfan var ekki með nýja meirihlutanum og Björn Ingi sprengdi hann til að ganga til liðs við stjórnarandstöðuna. Þessum fjörbrotum fylgdi gríðarleg dramatík sem náði hæstu hæðum þegar Björn Ingi beygði af á stórfundi Framsóknarflokksins. Svarthöfði, sem þá var framsóknarmaður, var á fundinum og táraðist í takt við aðra þegar Alfreð Þorsteinsson tók Björn Inga í fangið fyrir allra augum og veitti huggun í þeirri óbærilegu sorg sem fylgir því að neyðast til að svíkja samstarfsflokkinn.

Sú aðgerð að sprengja meirihlutann varð til þess að margir misstu spæni úr aski sínum. Vilhjálmur hætti að vera borgarstjóri og fór á biðlaun. Snaggaralegur aðstoðarmaður hans, Jón Kristinn Snæhólm, sem verið hafði áberandi við hlið borgarstjórans missti vinnuna og fór líka á biðlaun. Mikill missir var að Jóni Kristni úr Ráðhúsinu en hann átti meðal annars drjúgan hlut í því að slökkva elda þegar hluti af Lækjargötu brann.

Dagur B. Eggertsson, krullaður leiðtogi Samfylkingar, tók við borgarstjóraembættinu. Honum fylgdi sem aðstoðarmaður gulldrengurinn Guðmundur Steingrímsson, sem hafði floppað í kosningum og varð að fá vellaunaða vinnu undir litlu álagi. Guðmundur þessi er ein efnilegasta stjarna íslenskra stjórnmála, enda forsætisráðherra í tvo ættliði. Þegar þarna var komið sögu voru þrír borgarstjórar og þrír aðstoðarmenn á launum hjá Reykvíkingum á kjörtímabilinu. Nýi borgarstjórinn, sem er læknir að mennt, blómstraði í starfi sínu en hann átti erfitt með að koma málefnasamningi á koppinn.

Þá kom upp sá vandi að leiðtogi frjálslyndra, sem er líka læknir, var útskrifaður af sjúkrahúsi og tók við af varamanni sínum en þau tvö voru ósammála um flest. Dagur borgarstjóri eyddi miklum tíma í að spegla sig með borgarstjórakeðjuna og hafði ekki minnstu hugmynd um að hinn læknirinn horfði öfundaraugum á hálsskrautið.

Þegar auður og völd eru annars vegar er stutt í launráðin. Þegar Dagur hafði speglað sig í 100 daga og lagt huglæg drög að málefnasamningi dró enn til tíðinda í Ráðhúsinu. Hinn læknirinn gekk í faðm sjálfstæðismanna gegn því að fá að verða borgarstjóri. Og hann réði sér aðstoðarmann, Ólöfu Valdimarsdóttur, kjarnakonu sem látið hafði sig velferð náttúrunnar varða. Ólafur F. fékk keðjuna sem enn var með lífsýnum úr hinum lækninum og Vilhjálmi Þ.

Fjórir borgarstjórar á launum og fjórir aðstoðarmenn. Þetta er auðvitað ekki of ílagt til að tryggja farsæla stjórnun. Svo kom á daginn að aðstoðarmaður Ólafs F. var ekki starfi sínu vaxinn. Ólafur og Ólöf gengu ekki í takt og hann rak hana umsvifalaust. Svarthöfði þarf að grípa til reiknitölvunnar til að átta sig á nýjustu tölum úr Ráðhúsinu.

Niðurstaðan er fimm aðstoðarmenn á launum og fjórir borgarstjórar en það er vegna þess að Ólafur læknir átti eftir að ráða nýjan aðstoðarmann. Hann hafði handsalað ráðningu Gunnars Smára Egilssonar, fyrrverandi fjölmiðlakóngs, sem aðstoðarmanns en reitti þá Davíð Oddsson seðlabankastjóra til reiði. Borgarstjórinn hrökk til baka en réði hinn fallna fjölmiðlakóng sem eins konar ráðgjafa á ofurlaunum.

Og nú eru enn blikur á lofti í Ráðhúsinu. Sjálfstæðismenn eru hundfúlir yfir því að sjá Ólaf spegla sig með keðjuna. Og ekki stendur á launráðum. Framsóknarmaðurinn Óskar Bergsson þenur brjóst og sperrir stél, tilbúinn til að stjórna með sjálfstæðismönnum. Það gæti því komið til fimmti borgarstjórinn og raunverulega sjöundi aðstoðarmaðurinn. Ja, hérna, tólf stöðugildi sem fylgja stóli borgarstjóra og kjörtímabilið er rétt rúmlega hálfnað. Þannig gætu Reykvíkingar orðið þess heiðurs aðnjótandi að búa til atvinnu fyrir hátt á annan tug sómamanna til að halda úti borgarstjóra.  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?