ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Hví bauð mér enginn?

16:25 › 12. ágúst 2008

Eric Clapton er mikill snillingur þegar tónlistin er annars vegar. Þessi maður hefur fágæt tök á gítarnum og kann að dáleiða áheyrendur sína hvort sem er á plötum eða í myndböndum. Svarthöfði hefði viljað komast að því hvort galdurinn sé sá sami á sviði en af því gat ekki orðið. Ástæðan er einföld, það vildi enginn bjóða Svarthöfða frítt á tónleikana um síðustu helgi.

Nú skal alveg viðurkennast að þótt Clapton sé góður tónlistarmaður að mati Svarthöfða hefur galdur hans aldrei verið það mikill að einhver af plötum hans hafi bæst í plötusafn Svarthöfða. En úr því má bæta og fyrir því er vilji. Þannig hefði Svarthöfða ekki komið til hugar að afþakka tveggja geisladiska hátíðarútgáfuna af Eric Clapton sem Orkuveitan gaf útvöldum viðskiptavinum sínum fyrir nokkru. Þannig hefði Svarthöfði getað sett sig vel inn í tónlist meistarans áður en á tónleikana væri komið.

En Orkuveitan hafði einhverra hluta vegna ekki áhuga á að bjóða Svarthöfða á tónleikana. Nú er erfitt að gera sér grein hverju sætir. Svarthöfði og fjölskylda hans öll hefur jú árum saman verið góður og gildur viðskiptavinur Orkuveitu Reykjavíkur og þar áður þeirra borgarfyrirtækja sem sameinuðust í Orkuveituna. En þetta dugði víst ekki til. Kannski hefði Svarthöfði þurft að eiga fyrirtæki til að fá boð á tónleikana og í boðið sem Orkuveitan bauð í á undan tónleikunum.

Og það var víst ekki bara Orkuveitan sem bauð fólki á tónleikana. Einhverjir bankanna munu víst hafa gert slíkt hið sama, gott ef ekki þeir flestir. Nú skal viðurkennast að Svarthöfði ætti nú ekki að láta sér sárna við þessi tíðindi. Öllu heldur ætti hann nú að sjá sóma sinn í að kaupa sjálfur miða á tónleikana.

En það verður víst ekki umflúið að gangast við því að Svarthöfði á við smá lausafjárörðugleika að stríða. Bankinn sem í fyrra jós lánum í Svarthöfða heldur nú að sér höndum. Því hefði Svarthöfði vel þegið boðsmiða. Og Svarthöfði hlýtur að teljast góður viðskiptavinur síns banka, með yfirdráttarlán á himinháum vöxtum, skipta greiðslukortareikninga á svakalegum vöxtum og gott en hann gleymir ekki einstaka sinnum að borga reikninga á réttum tíma með tilheyrandi fjárútlátum. En samt vildi enginn bjóða Svarthöfða.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?