Krepputal sumarsins er orðið svo íþyngjandi að Svarthöfði hefur ákveðið að einblína á góðar hliðar efnahagslægðarinnar í stað þess að liggja í volæði yfir bensínreikningum og sligandi húsnæðislánum. Þetta snýst nefnilega um það eitt að snúa sút í sælu og smæla framan í kreppuna. Svarthöfði hefur þannig gert neyðaráætlun um það hvernig sigrast má á kreppunni í 10 skrefum.
Fyrsta skrefið er að leggja einum til tveimur bílum fjölskyldunnar en nota fætur og hjól í staðinn. Þá verður sunnudagsbíltúrum hætt þar til birtir upp en haldið kyrru fyrir á heimili.
Annað skrefið er að hætta að panta pitsur og gjörbreyta matarinnkaupum heimilisins. Þannig mun Svarthöfði leitast við að kaupa beint af bændum. Hálft naut mun til dæmis fleyta fjölskyldunni langleiðina í gegnum kreppuna. Þá má alltaf kaupa eitt og eitt lamb til að drýgja kjötbúskapinn.
Þriðja skrefið er að hætta þegar utanlandsferðum og láta Þingvallahringinn nægja þegar stórrar tilbreytingar er þörf. Svarthöfði hefur glímt við reykingafíkn og verið ákafur aðdáandi koníaks og fínni léttvína. Hvort tveggja verður að víkja. Líklega er ekki raunhæft að leggja alfarið af þá ósiði að drekka og reykja. Vindlunum verður slátrað fyrir pípu og koníakið verður partur af horfnu góðæri. Rabarbari, sykur og ger verða að duga til að brugga mjöð sem dugir til að lýsa upp tilveruna.
Fimmta skrefið er að hætta að fara í bíó eða á myndbandsleigur. Svarthöfði á safn af gömlum vídeóspólum og geisladiskum sem verða að duga í þá afþreyingu. Endurtekið efni á tyllistundum hlýtur að vera eitthvað sem venst.
Sjötta skrefið ætti að vera að selja húseignina og leigja. Vandinn er sá að fasteignamarkaðurinn er frosinn og ekki hægt um vik þar. Þess vegna verður að duga að draga niður í hitanum og nota rafmagnið í hófi. Aldrei að kveikja ljós nema brýna nauðsyn beri til.
Sjöunda skrefið er að hætta fatakaupum á meðan svartasta kreppan gengur yfir. Singersaumavélin verður endurræst og allt nýtt til hins ítrasta. Þannig má sauma ný föt á börnin úr ónýtum fötum hinna fullorðnu. Í gamla daga var algengt að konur saumuðu sér pils úr hveitipokum frá Pillsbury´s Best. Nú er hveitið að vísu ekki í þannig umbúðum svo finna verður aðra álnavöru í sparnaðarskyni.
Áttunda skrefið felst í því að hætta að láta klippa sig á stofu en nota þess í stað eigin skæri. Þekkt er frá fyrri tíð og jafnvel í nútímanum að ófaglærðir klipptu hver annan. Til að tryggja jafna línu var sett skál á höfuð þolandans og klippt meðfram. Með þessu móti sparast verulegir fjármunir, einkum og sér í lagi í stærri fjölskyldum.
Níunda skrefið til að lifa af kreppuna er fólgið í því að hætta að skipta við banka nema í þeim eina tilgangi að taka út lausafé. Þannig mun Svarthöfði ekki taka þátt í neinu rafrænu rugli með peninga heldur greiða allt með beinhörðum peningum eða öllu heldur pappírsmjúkum. Kreditkortin verða aflögð. Það er líklegt til sparnaðar að halda á peningum í stað þess að reiða plastkort af hendi hugsunarlaust.
Tíunda skrefið er að láta loka öllum símum fjölskyldunnar og spara þannig stórfé. Það ætti að vera í lagi ef miðað er við það sem að framan er sagt. Svarthöfði á eftir 10. skrefið varla erindi við nokkurn mann utan fjölskyldunnar og hefur í raun hafnað nútímasamfélagi. Þá er ekkert annað að gera en að verða einbúi í afdal úti á landi. Verst er þó hvað jarðir eru orðnar fokdýrar á Íslands farsældar Fróni.
Blogg
Farsældar frón
11:19 › 31. júlí 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
