ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Svartur dagur á Urriðavelli

11:51 › 29. júlí 2008

Golf er göfug íþrótt. Heldrimannaíþrótt sem hefur tekist að breyta jafnvel villimönnum í siðaða menn, þó það kunni aðeins að vera rétt á meðan menn stunda þessa íþrótt heiðursmanna. Þessi merka íþrótt hefur sínar hefðir, sína siði sem eru stór hluti af því hversu fáguð íþrótt það er að taka kylfu og slá í bolta þannig að hann fljúgi langar leiðir.

Og einn siðurinn er sá að golfarar séu almennilega til fara. Það er kannski ekki hægt að krefjast þess að allri séu jafn óaðfinnanlega klæddir við golfiðkun og Bertie Wooster, í samnefndum breskum grínþáttum gerðum eftir samnefndum breskum gamansögum P. J. Wodehouse. En það má aldrei, aldrei, aldrei gerast að menn mæti á golfvöll og byrji að slá íklæddir gallabuxum.

Þess vegna hlýtur það að vera svartur dagur í sögu Urriðavallar í Heiðmörk, dagurinn þegar Mel Gibson mætti á völlinn. Þessi stórstjarna sem hefur leikið jafnt Max hinn brjálaða og Hamlet hans Shakespeares kom til að leika nokkrar holur á vellinum. Leikarinn heimsfrægi sem gerði skoskan uppreisnarmann ódauðlegan og lýsti þjáningum frelsarans svo sköruglega að jafnvel hörðustu karlmenni fundu til gerðist nú sekur um þau helgispjöll að spila golf í gallabuxum. Sök sér að hann skyldi skjóta boltanum út fyrir brautina en í gallabuxum má víst enginn mæta á golfvelli.

Hvað ætli Tiger Woods myndi segja? Blökkumaðurinn sem hefur gert íþróttina vinsælli meðal almennings heldur en kannski nokkur annar golfleikari fyrr og síðar. Tiger Woods er vissulega sportlega klæddur þegar hann mætir til æfinga og keppni. En gallabuxum sést hann væntanlega seint í. Dettur nokkrum í hug að Phil Mickelson hefði fengið að klæðast græna jakkanum við gallabuxur? Sennilega hefði það þótt jafn galið og ef Christiano Ronaldo hefði mætt í bleikum sokkabuxum í stað hvítra stuttbuxna í leik með Manchester United eða portúgalska landsliðinu.

Nei, fötin skapa manninn. Alla vega í sumum íþróttagreinum. Og vei þeim sem reynir að brjótast út úr hefðinni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?