ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Gordon og Geir

15:39 › 28. júlí 2008

Íslenskt samfélag er eitt hið umburðarlyndasta í hinum vestræna heimi þar sem kemur að frammistöðu stjórnmálamanna. Ár og dagar líða án þess að þjóðin segi mönnum sem ekki standa sig upp vinnunni. Og þjóðin kýs ítrekað yfir sig menn og flokka sem ekki gera það í vinnunni sem þeir lýstu í umsókninni. Þess vegna er nú svo komið að hér er margt í kaldakoli og almenningur kveinar undan skuldum og himinháu verðlagi.

Frændur okkar Bretar hugsa þetta öðruvísi. Þegar stjórnmálamenn standa sig ekki eru þeir yfirleitt reknir úr vinnunni hið snarasta. Sá ágæti maður Gordon Brown fékk uppfylltan þann langþráða draum sinn að verða formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra þegar hann tók við af Tony Blair sem átt hafði margar sigurgöngur með flokk sinn áður en mælir hans fylltist. Á þeim tíma sem er liðinn síðan það gerðist hefur gengi Verkamannaflokksins hrapað hraðar en íslensku krónunnar og flokkurinn er í tjóni. Þingmenn Verkamannaflokksins rísa auðvitað gegn leiðtoganum og reiknað er með falli hans á næstunni. Þolinmæðin gagnvart slökum leiðtoga er lítil sem engin.

Ferill Gordons er ekki ólíkur ferli Geirs Hilmars Haarde sem lengst af ferli sínum var farsæll bátsmaður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra. Geir er fjarri því að vera litríkur stjórnmálamaður en hann hefur þótt vera traustur. Þegar Davíð riðaði til falls ákvað hann, rétt eins og Tony áður, að víkja og afhenda Geir lyklana að Valhöll. Síðan það gerðist hefur hallað stöðugt undan fæti. Þjóðarbúið stendur í björtu báli og efasemdaraddir um getu formannsins eru alls staðar, meira að segja inni í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Hópur þingmanna flokksins er sannfærður um að Geir valdi ekki hlutverki sínu fremur en Brown. Sumir tala opinberlega undir rós en aðrir gnísta tönnum í máttvana þögn.

Vandinn liggur nefnilega í því að á Íslandi er hefð fyrir því að umbera næstum allt þar sem stjórnmálamenn eru annars vegar. Við látum kyrrt liggja þótt flokkur lofi stóriðjustoppi fyrir kosningar en svíki það umsvifalaust þegar í ríkisstjórn er komið. Og við sættum okkur við að flokkur sem lofar einkaframtaki fyrir allar kosningar, svíki það jafnharðan til að efla vígi sitt sem hann reisir á kostnað almennings. Ríkisútvarpið er prýðilegt dæmi um það. Og Baugsmálið er annað ágætt dæmi um fasista sem nota tæki samfélagsins til að berja á meintum óvinum án þess að nefna það fyrir kosningar. Þetta eru mennirnir sem velja vini sína og frændur til að setjast í sæti dómara.

En ólík eru kjör þeirra Geirs og Gordons. Á meðan Gordon bíður þess eins að vera tekinn niður er Geir í allsæmilegum málum. Þótt hann hafi með aðgerðaleysi bókstaflega klúðrað efnahag Íslendinga þorir enginn að segja að hann eigi að víkja. Þótt fjárhagur fyrirtækja og almennra borgara standi anspænis hreinum voða er lítið aðhafst. Sjálfur bregður Geir sér í slökunarferð til Noregs eftir að hafa verið á þeytingi landa í milli lengst af ári án sýnilegs tilgangs. Skipstjóri sökkvandi skips hefur það helst til málanna að leggja að láta þyrlu sækja sig svo hann geti brugðið sér á skíði.

En kjósendur á Íslandi eru þeirrar náttúru að leyfa skipinu að sökkva áður en skipstjórinn er kallaður til ábyrgðar. Bretarnir horfa öðruvísi á málið. Þar er talin ástæða til að grípa strax inn í atburðarásina og fyrirbyggja þannig að þjóðarbúskapur þeirra verði fyrir stórslysi. Þótt Gordon og Geir séu í sömu stöðu gagnvart þjóðum sínum býr hinn síðarnefndi við allt annað og betra atvinnuöryggi. Það er vegna þess að atvinnurekendur þeirra eru misvel vakandi yfir frammistöðu þeirra.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?