Fátt er um meira rætt en efnahagsmál þetta sumarið, nema ef vera kynni Evrópusambandið - og það þá auðvitað að stórum hluta vegna þess hversu illa málum er nú komið í efnahag þjóðarinnar. Á stundum sem þessum ráða efnahagsráðgjafar og Evrópufræðingar ferðinni að slepptum orðum stjórnmálamanna og talsmanna hagsmunasamtaka.
Efnahagsmálin í kalda kolum, svo mjög að fólk man vart annað. Í stað þess að dást að stórhug og gáfum framtakssamra auðmanna hófst upp ramakvein um slaka efnahagsstjórn og lánamarkað sem hafði verið lagður í eyði. Geir H. Haarde réð sér efnahagsráðgjafann Tryggva Þór Herbertsson og Steingrímur J. Sigfússon og hans vinstri-grænu félagar kröfðust þess að þingið gæti komið saman til að ræða efnahagsvandann og leiðir til að bjarga málum.
Eftir stóð Kristinn H. Gunnarsson einn manna og sagði fólki að hafa ekki allar þessar áhyggjur.
Og auðvitað snerist þessi umræða að einhverju leyti um Evrópusambandið sem stundum hefur verið nefnt báknið mikla og öðrum stundum ljósið í myrkrinu. Og sjá, þjóðin setti á sig nýja skó, tók staf sinn og hatt og sagðist vilja skunda til Brussel.
Svo hafa menn meira að segja fundið út að fréttaritarar Ríkisútvarpsins erlendis hafa verið á bandvitlausum stöðum. Einn hefur verið í Lundúnum og annar vestanhafs og svo var auðvitað einn í kóngsins Kaupmannahöfn. Sá hefur reyndar þurft að taka pokann sinn af því að Ríkisútvarpið hefur eins og svo margir aðrir þurft að skera niður útgjöld sín.
En það er nefnilega þessi fréttaritari í Kaupmannahöfn sem þykir hafa verið á vitlausum stað. Því þar er ekkert til að fjalla um nema drottningin fyrir hádegi og Friðrik Weisshappel eftir hádegi. Eða svo segir allavega Silfur-Egill Helgason og varla skjátlast honum.
Auðvitað hefði þessi fréttaritari ekki átt að vera í höfuðborg hinnar keðjureykjandi drottningar heldur í Brussel, hjarta Evrópusambandsins, þar sem stjórnmálamenn og embættismenn og baráttumenn sérhagsmuna hafa komið sér fyrir til að ráða lögum og lofum álfunnar. Og hefði þá sennilega verið rætt ennþá meira um Evrópusambandið en raun ber vitni á þessu e-sumri sem aldrei þessu vant var ekki nefnt eftir fíkniefni.
Blogg
E-sumarið mikla 2008
09:54 › 23. júlí 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
