ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Bjargvætturinn

00:00 › 21. júlí 2008

Lán hverrar þjóðar er að eiga gott fólk til að hjálpa henni að ná markmiðum sínum og vinna sig út úr vanda þá sjaldan þjóðin glímir við slík fyrirbæri. Og best af öllu er auðvitað þegar sami maður getur komið að því að móta stefnuna og móta svo leiðirnar til að bjargar úr vandanum sem fylgir í kjölfarið.

Nú hafa Íslendingar eignast nýjan bjargvætt. Á tímum þjóðarsáttar bar bjargvætturinn heitið Einar Oddur Kristjánsson, kom að vestan og hafði reynslu úr sjávarútvegi. Nú, á tímum nýrra þrenginga, heitir bjargvætturinn Tryggvi Þór Herbertsson, kemur úr banka og hefur meðal annars reynslu af rótarastörfum og sem klippari í sjónvarpsfréttum.

Tryggvi Þór Herbertsson er sem sagt kominn til að bjarga íslensku þjóðinni úr vanda. Maðurinn sem Geir H. Haarde forsætisráðherra réð sem efnahagsráðgjafa sinn er ekki ókunnugur því að valsa um ganga stjórnarráðsins. Þannig hefur hann oft verið ríkisstjórninni til ráðgjafar, meðal annars þegar hann var forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Þá var hann ötull málsvari ríkisstjórnarinnar og studdi efnahagsráðstafanir hennar í orðum og gjörðum, að sögn vegna þess að oft hafði verið leitað til hans um ráðgjöf áður en lagt var af stað í leiðangur.

Tryggvi Þór talaði til dæmis fjálglega um kosti verðbólgumarkmiða Seðlabankans nokkrum mánuðum eftir að þau voru tekin upp. Þá hafði verðbólga farið úr fjórum prósentum í tæp tíu prósent á skömmum tíma eftir tilkomu nýju peningamálastefnu Seðlabankans. En Tryggvi Þór vissi sínu viti og sagði að nýjar aðferðir gætu þurft eitt og hálft til tvö ár til að virka. Enda fór svo að rúmu ári eftir tilkomu nýju verðbólgumarkmiðanna hríðlækkaði verðbólgan. Einhverjir kynnu að segja að það væri vegna aðgerða sem ráðist var í að frumkvæði verkalýðsfélaga og vinnuveitenda en það er annað mál.

En spáin gekk eftir og upphófst tímabil lítillar verðbólgu í tvö til þrjú ár og ekki var annað að sjá en allt væri í góðu lagi. Stefnan virkaði. En svo fór að síga á ógæfuhliðina og nú hefur verðbólga verið yfir hættumörkum nær undantekningalaust í um þrjú ár. Og er þá ekki gott að eiga góðan mann í handraðanum? Geir H. Haarde kallaði eftir bjargvætti og Tryggvi Þór Herbertsson svaraði kallinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?