Stjórnvöld hafa mjög einfalda stefnu þegar kemur að kjöti. Hún er sú að landsmenn hafi bara gott af því að borga mikið fyrir það. Helst sem mest svo bændur og umboðsmenn þeirra missi örugglega ekki spón úr aski sínum.
Nú er að vísu vont fólk á ferðinni í útlöndum sem vill lækka tolla á matvæli og beita öðrum aðferðum til að almenningur fái að kaupa matinn sinn á lægra verði en hefur þekkst hingað til. Vont fólk, sem stendur í samningaviðræðum á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, vill auðvelda viðskipti með landbúnaðarafurðir og þannig létta á útgjöldum almennings við matarkaup. Íslensk stjórnvöld standa hins vegar gegn þessu af festu. Þannig hefur Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lýst því yfir að hann ætli ekki að standa fyrir neinum lækkunum á tollavernd bænda. „Við erum ekki með nein áform um að kýla niður tollverndina,“ sagði Einar í DV fyrir nokkru. „Íslenskur landbúnaðar þarf á henni að halda til að lifa af í þessum harða heimi.“
Það er því ekki við öðru að búast en íslensk stjórnvöld vígbúist til varnar landbúnaðinum. Þetta hefur líka Geir H. Haarde sagt áður og verið stefna íslenskra stjórnvalda í framkvæmd. Og þó Samfylkingin hafi stundum haft hátt um að lækka eigi tollaverndina og lækka þannig matvælaverð hefur ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks að því er virðist engan áhuga á því.
Enda hvers vegna ætti að lækka matvælaverðið? Hvers vegna ætti að opna enn frekar fyrir innflutning á erlendum matvælum? Myndi það ekki leiða til stóraukinnar sjúkdómahættu? Blossaði ekki upp salmonellufaraldur sem ekkert yrði við ráðið? Og gin- og klaufaveiki? Og kúariða? Og Creutzfeldt-Jakob veiki? Og er það ekki staðreynd að þjóðir Evrópu hrynja nú niður vegna alls þess hættulega kjöts sem þær framleiða? Eða er það kannski ekki svo? Hefur hættan af innflutningi kjöts kannski verið stórlega ofmetin? Svo segja sérfræðingar en stjórnmálamenn hafa ekki hlustað á þá. Kannski vegna þess að þeir óttast að tapa atkvæðum bænda. Kannski vegna þess að þeir óttast að fá hagsmunasamtök þeirra upp á móti sér. Kannski vegna þess að þeim finnst bara hið besta mál að fólk borgi sem mestan pening fyrir matinn sinn.
Blogg
Borgum meira, miklu meira
00:00 › 14. júlí 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
