ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Góða ferð, eða þannig

00:00 › 10. júlí 2008

Íslenskum stjórnvöldum er bölvanlega við að útlendingar séu að þvælast á landinu. Þessi afstaða kemur skýrt fram í máli Pauls Ramses, Keníumanns sem leitaði skjóls í norðurhöfum fyrir nöprum vindum pólitískra ofsókna í heimalandi sínu. Paul hafði góða reynslu af Íslendingum og þegar harðnaði á dalnum í Keníu ákvað hann að leita skjóls hér. En þótt Paul þekkti til Íslendinga vissi hann ekki að hér ríkja stjórnvöld sem gjarnan nota formsatriði til að koma slíkum mönnum til annarra landa. Því fór sem fór og Paul var gerður afturreka til Ítalíu þar sem hann hafði komið við á leið sinni til fyrirheitna landsins.

Það var ekki Frjálslyndi flokkurinn sem hrakti hann úr landi þótt þar á bæ séu menn þekktir fyrir að gjalda varhug við útlendingum sem gjarnan flytji með sér smit á borð við berkla eða menningarleg áhrif sem gætu stórskaðað samfélagið. Nei, það var dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sem ákvað að senda Paul nauðugan úr landi þótt hann hefði eignast barn á Íslandi með eiginkonu sinni. Ráðherrann sá sem var að Paul gat verið stórhættulegur samfélaginu svo ekki sé minnst á þá ógn sem stafað gæti af konunni og barninu. En auðvitað réð engu um afstöðu ráðherrans að fjölskyldan var þeldökk og passaði illa við hið hvíta Ísland.

En það er annað sem vekur athygli Svarthöfða. Í Njarðvík eru reknar eins konar flóttamannabúðir fyrir þá sem hingað leita eftir hæli. Þar er flóttamönnum haldið um tíma þar til ábyrgðinni af þeim er komið á herðar annarra þjóða. Kannski er ekki rétt að tala um flóttamannabúðir þar sem um er að ræða eitt hús, gistiheimili. En í samræmi við stefnu íslenskra stjórnvalda er skilti á húsinu utanverðu. Alsiða er að skilti séu inni á íslenskum heimilum með áletrunum á borð við „Drottinn blessi heimilið“ eða „Heima er best“. Björn Bjarnason, æðsti yfirmaður Útlendingastofnunar, er með hreinskilnustu mönnum og í samræmi við það má lesa utan á flóttamannahúsinu eftirfarandi: „Góða ferð. Spennum beltin.“ Og það er til dæmis um hagsýni þeirra sem höndla með óæskilega útlendinga að skiltið sem ráðleggur útlögunum að spenna beltin er kostað af olíurisanum Atlantsolíu. Svarthöfði ætlar ekki að halda því fram að olíufélagið kosti brottför hinna óæskilegu en alkunna er að þeir sem setja upp skilti á hús sín til að auglýsa fá greitt fyrir ómakið. Þannig mætti hugsa sér að þeir sem halda þeim landlausu uppi njóti fjárhagslegs ávinnings af auglýsingunni sem þess utan felur í sér skýr skilaboð um að þeir skuli hypja sig af landi brott.

Svarthöfði er á þeirri skoðun að stjórnvöld vilji af einlægni létta eins og mögulegt er á íslenska ríkinu með því að koma sem flestum úr landi sem ekki eru íslenskir að uppruna. Þetta sé því hagsýni en snúist ekki um illvilja gagnvart annarra þjóða fólki. Íslendingar eiga nóg með sjálfa sig þótt þeir fari ekki að leggja sitt lóð á skálar mannréttinda með því að bjarga öðrum frá ofsóknum. Íslensk stjórnvöld eru aukinheldur með sínar eigin ofsóknir gagnvart þegnunum og það kostar sitt eins og dómsmálaráðherra veit gjörla. Best væri ef hann gæti sent óvini ríkisins úr landi líka, þótt þeir séu Íslendingar. Góða ferð, eða þannig.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?