ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Braskarinn Guð

00:00 › 25. júní 2008

Svarthöfða hefur ekki verið svefnsamt undanfarið enda kýrskýrt að allt er að fara til andskotans. Krónan fellur oftar en ofvirkur alkóhólisti og eldsneytisverð setur ný verðmet nánast daglega. Svarthöfði hefur haft það ósköp notalegt í þenslunni en er nú mjög uggandi um eigin hag og annarra. Enda er enginn eyland og þegar fjarar undan einu okkar veit maður aldrei hver er næstur. Hannes Smárason missti mídasartötsið fyrstur og loftið sem hann snerti hætti að breytast í gull og FL-Group-bréfin urðu eins og hver önnur deCODE-bréf. Tískumógúll hér í bæ hefur lokað sjoppunni og sett upp svuntu og afgreiðir nú brauðristar og mótatimbur í BYKO. Þannig að engan þarf að undra að Svarthöfði óttist um eigin hag.

Týndur í þoku verðbólgu, gengisfalls og eldsneytisverðs reytti Svarthöfði hár sitt eins og sturlaður maður í guðlausum heimi. Svarthöfði hafði gleymt því að bænin er síðasta athvarf skúrksins og Guð svarar öllum sem til hans leita í einlægni. Svarthöfði gleymdi því í trylltum dansi í kringum útrásargullkálfana að Guð býr í garðslöngunni, gaddavírnum, gjaldheimtunni, gúmmíinu, galeiðunni og gengishruni. Allt lýtur guðlegri forsjá og það er því engin tilviljun að krónan sé á leiðinni til helvítis á meðan bensínverðið teygir sig til himna.

Sá skeleggi eldklerkur Gunnar í Krossinum vakti Svarthöfða af martraðardagdraumum um vítisvist sína í kreppunni með skarpri markaðsgreiningu í DV í gær.  „Auður heimsins safnast til þess landsvæðis sem aldingarðurinn var í upphafi. Þetta held ég að sé guðleg ábending til allra um að gæta sín og gera sig klára,“ sagði Gunnar um bensínverðið. „Við eigum að hafa það í huga að það er einn sem öllu stýrir og stjórnar. Atburðarásin er fyrirsögð og þetta er hluti af henni. Hækkandi bensínverð kemur mér ekki á óvart. Auður er vald og valdið er flutt á þennan stað og það verður notað gegn hinum vestræna manni. Menn skyldu gæta sín. Það er tími til kominn að skoða stöðu sína. Maður spyr sjálfan sig þegar þessar fjármálahremmingar eru um allan heim og enginn ræður við neitt hvort þetta sé þetta lokahrun sem við eigum von á eða hvort við fáum einhvern frest. Kannski Geir H. Haarde komi því til leiðar.“

Auðvitað er Guð prímusmótorinn í þessu eins og öllu öðru. Guð er auðvitað í Kauphöllinni, NASDAQ og öllu þessu dóti, rétt eins og í gaddavírnum og garðslöngunni. Guð er með spákupmönnunum í braskinu og ef til vill er þetta rétt hjá Gunnari. Að hann sé að leggja drög að efsta degi með því að dæla hverjum einasta vestræna aur til arabalanda. Svarthöfði hefur þó meiri trú á algóðu almættinu en svo að hann óttist heimsenda í kjölfar kreppunnar. Nú hefur Guð tekið fargið af herðum Svarthöfða sem felur sig og framtíð sína forsjá Guðs. Og það er ekkert að óttast. Sé Guð braskari og að störfum í Kauphöllinni rétt eins og í hjörtum Svarthöfða og spákaupmannanna þá veit hann auðvitað að heimsendir er vonlaus bisniss. Brölt sem enginn græðir á.

Þessi él mun birta upp um síðir. Þegar Guð telur sig hafa veitt okkur hóflega áminningu fyrir gullkálfadýrkun síðustu ára. Verst bara að sennilega verða Íslendingar neðstir á upprisulista Guðs og jafnvel þótt Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún myndu kasta hrokanum strax í dag, krjúpa á kné og biðja Guð um hjálp þá er Svarthöfði nú hræddur um að syndaregistur þeirra sé nú þegar orðið það langt að Íslendingar fái að dúsa allra þjóða lengst í hreinsunareldinum sem þau skötuhjú blása stöðugt lífi í með dyggri aðstoð höfðingjans í Svörtu Loftum.

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?