ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Verndari næturinnar

00:00 › 23. júní 2008

Svarthöfði á bágt með að skilja hvernig svokallaðir miðborgarþjónar eiga að koma að gagni í tilraunum til þess að koma böndum á trylltar fyllibyttur í miðborg Reykjavíkur á kvöldin um helgar. Þessar kempur eru viðbragð við fáum löggum á stríðssvæðinu á háannatíma og munu vera sérþjálfaðar í einhverju, þó varla vopnaburði og slagsmálum þar sem miðborgarþjónar hafa ekki heimild til þess að handtaka ribbalda eða grípa til nokkurra aðgerða sem sköpum geta skipt á ögurstundu.

Þetta munu þó vera sjálfbjarga einstaklingar og mega aðstoða sauðdrukkna ræfla á förnum vegi. Miðborgarþjónarnir skera sig úr fjöldanum þar sem þeir ganga í sjálflýsandi vestum og bera ýmsar nauðsynjar á borð við vatn í bakpokum. Svarthöfði veit af eigin reynslu að vatn getur verið gulls ígildi þegar líður á fylliríin og vökvaskortur gerir vart við sig. Þá er ekki ónýtt að velviljaður þjónn beri í mann vatn eftir að spýjurnar hafa gengið upp úr manni í rennusteininn í Bankastræti. Hugsunin að baki þessum miðborgarþjónum er því göfug og góð en samt óttast Svarthöfði að þeir muni verða til trafala.

Miskunnsamir Samverjar eru nefnilega hálfgerð regnbogabörn í augum drykkjuberserkja og fátt finnst grimmum fyllibyttum skemmtilegra en að níðast á góðum sálum. Því má ætla að Samverjarnir verði ekki búnir að bera mikið vatn í gegnum sollinn áður en rándýrin átta sig á að bráðsnjallt sé að berja þessa góðverkasnata í gulu vestunum. Lögreglan mun því þurfa að eyða dýrmætum tíma sínum og mannskap í að halda verndarhendi yfir miðborgarþjónunum á meðan kófdrukkið og athyglissjúkt fjölmiðlafólk heldur vöku fyrir góðborgurum á Vegamótastíg með hópreykingum fyrir utan Ölstofuna.

Fáliðaðar og geðstirðar gaslöggur með vatnsbera í gulum vestum munu aldrei koma böndum á brjálæðið í sollinum. Til þess þarf ekkert minna en ofurhetju og góðu heilli er sú hetja komin í leitirnar. Batman er upptekin í Gotham-borg og Superman á ekki heimangengt frá Metropolis en það er allt í lagi. Við eigum Aron Pálma, verndara næturinnar. Segja má að Aron Pálmi sé pólitískur flóttamaður á Íslandi en hingað hraktist hann undan ofsóknum illgjarns saksóknara í Texas. Aron Pálmi hefur þakkað Íslendingum hælið með því að vera ítrekað til staðar þegar fjandinn verður laus í miðbæ Reykjavíkur.

Nú síðast afvopnaði Aron Pálmi óðan hnífamann og lagðist á hann af fullum þunga þar til lögregla kom járnum á manninn og fjarlægði. Þetta hefðu miðborgarþjónarnir hvorki mátt né þorað að gera. Hetjan Aron Pálmi lætur sér hins vegar ekkert fyrir brjósti brenna og hikar ekki við að stofa lífi sínu og limum í hættu til þess að vernda skemmtanaglaða samborgara sína.

Þrátt fyrir kjark, þor og mikla líkamsburði er þó ekki hægt að ætlast til þess að Aron Pálmi leggi drykkjudrýslana alla að velli einn síns liðs. Hins vegar væri ráð að stofna nokkurs konar útlendingaherdeild miðbæjarins sem yrði skipuð óttalausum og ofsóttum einstaklingum sem hingað hrekjast af manna völdum. Það var mikið glapræði að sálga flóttaísbjörnunum tveimur sem stigu hér á land um daginn. Og þegar næstu birnir koma er um að gera að ná þeim lifandi, setja á þá hundaólar og skipa þeim í flokk með Aroni Pálma.

Þegar Verndari næturinnar mun spóka sig í Austurstræti með tvo mannýga ísbirni í taumi mun ekki heyrast hósti né stuna frá einni einustu fyllibyttu og þá fyrst geta sómakærir borgarar og miðborgarþjónarnir spókað sig í miðbænum á síðkvöldum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?