ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Heimsendir

00:00 › 19. júní 2008

Svarthöfði er alltaf að sjá það betur og betur að ekki er allt með felldu. Ýmis teikn hafa verið á lofti undanfarið og á síðustu dögum hafa of mörg viðtekin sannindi kollvarpast þannig að ljóst má vera að heimsendir er yfirvofandi.

Ekki nóg með það að jörð hafi skolfið í Kína, Grikklandi og á Íslandi, heldur hafa tveir ísbirnir gengið á land á Íslandi á tveimur vikum. Þessar tíðu heimsóknir hvítabjarna hljóta að benda til þess að ekki sé allt með felldu og loftslagsbreytingar hafi myndað einhvers konar hraðbraut til Íslands fyrir slæpta bangsa.

Blóði dýranna hefur verið úthelt í tvígang. Kannski er það þó það eina eðlilega í þessum ísbjarnamálum. Ísbirnir hafa hingað til ekki átt sjö dagana sæla í nágrenni við Íslendinga. Þá má ætla að seinni ísbjörninn, sem þó var reynt að bjarga, hafi verið feigur. Það segir sig í það minnsta sjálft að hefði hann náðst lifandi og verið fluttur til Grænlands þá hefði Siggi ísmaður tekið á móti honum þar með stóru byssunni og þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.

Þar fyrir utan hefði varla tekið því að bjarga bangsa þar sem þetta er að verða búið hjá okkur öllum. Í Biblíunni má lesa um engusprettufaraldra og aðra óáran sem fylgir ragnarökum og þó engar séu engispretturnar hér þá mætti halda að slíkur faraldur hefði farið um íslenskt efnahagslíf þar sem hvergi stendur steinn yfir steini.

Ástandið er nú orðið þannig að Íslendingar hafa ekki efni á að keyra fínu góðærisbílana sína. Megas hefur selt lag í auglýsingu og KR-ingur skoraði þrennnu í fótboltaleik. Ef við getum ekki lengur keyrt, Megas selur sig og KR-ingur skorar mark þá er þetta búið. Þetta eru slæmir fyrirboðar og þótt forsætisráðherra hafi reynt að róa lýðinn með því að boða betri tíma með blóm í haga í 17. júní ávarpi sínu þá mega þau orð sín lítils gegn því sem við okkur blasir.

Heimsendir er í nánd. Og það þarf ekki að vera svo slæmt fyrir okkur Íslendinga. Við getum þá í það minnsta haldið áfram að eyða um efni fram án þess að þurfa að hafa áhyggjur af aleiðingunum. Nú er bara um að gera að hafa það næs í lokin og nota kreditkortin þar til hinsti dagur rís.

Síðasti maður út man svo bara eftir að slökkva ljósin.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?