Allt sem Svarthöfði trúði á er hrunið. Framsóknarflokkurinn er heillum horfinn og eftir að Guðni sterki skildi við þá ömurlegu hjörð sem myndar þann flokk ætla þrír ungir menn að bítast um þann vafasama heiður að ganga síðasta spölinn með flokknum og kasta rekunum. Sorglegt dæmi um metnaðarleysi unga fólksins í dag. Að keppast við að setja markið sem lægst. Séu þessir menn rjóminn af því sem íslensk pólitík býður upp á er ljóst að við verðum að kalla til eldri og reyndari menn til að bjarga Íslandi úr því feni spillingar, græðgi og heimsku sem við sökkvum nú í.
Íslenskir jafnaðarmenn eru líka búnir að vera og munu fylgja Framsókn í gröfina þar sem valdaskessan sem leiðir þann mislukkaða hóp hefur afráðið að gerast hækja Sjálfstæðisflokksins í einu og öllu og fórna göfugum hugsjónum jafnaðarmennskunnar fyrir völd. Völd sem eru að vísu einskis virði í landi sem er svo heillum horfið að í raun er jafndularfullt að fólk skuli vilja stjórna því og að einhver fáist til að stýra Framsókn.
Sjálfstæðisflokkurinn er líka á síðustu metrunum í helför sinni með Samfylkinguna í eftirdragi. Þar situr máttlausasti formaður íslenskrar stjórnmálasögu og huglausasti formaður í sögu þess fornfræga flokks.
Og til þess að bæta gráu ofan á biksvart er Morgunblaðið á hausnum. Þessi rótgróna stofnun sem Svarthöfði hélt að væri jafneilíf og Samband íslenskra samvinnufélaga rambar á barmi gjaldþrots. Efnahagslegs og hugmyndafræðilegs þar sem á daginn hefur komið að ekki er lengur hægt að reka fjölmiðil með það markmið að sölsa undir sig völd frekar en upplýsa lesendur með vandaðri og hlutlausri blaðamennsku.
Allar meginstoðir tilveru Svarthöfða eru því fúnar og að falli komnar. Og í þessum efnum dugir ekki að kenna aðeins utanaðkomandi aðstæðum um. Öll þessi hugmyndafræðilegu gjaldþrot geta ekki skrifast á heimskreppu, ameríska lánavafninga og ofvirka kapítalista. Sökin liggur fyrst og fremst hjá því fólki sem hér á í hlut. Ekkert getur bjargað Sjálfstæðisflokknum,.Samfylkingunni, Mogganum og Framsókn nema endurnýjun. En þar sem við blasir að þeir sem eru við það að erfa landið eru síst skárri en þeir sem sigldu þessum máttarstólpum í strand mun endurnýjunin ekki duga nema í henni felist um leið endurvinnsla.
Nú þarf að kalla til leiks menn sem kunna til verka og hafa sýnt sig og sannað í gegnum áratugina. Þeir björgunarleiðangrar sem þarf að leggja í eru ekki á færi unglinga og kjána sem hafa prílað metorðastigana í góðærisblekkingunni. Nú dugir ekkert minna en vanir menn og engin vettlingatök.
Þess vegna liggur beinast við að Davíð Oddsson taki aftur við Sjálfstæðisflokknum. Geir má bara senda hvert sem er annað en í Seðlabankann. Jón Baldvin Hannibalsson er eini augljósi arftaki Ingibjargar Sólrúnar enda skilja fáir betur eðli og tilgang jafnaðarmennsku en þessi síungi Vestfirðingur. Stórvinur Jóns Baldvins og skósveinn Davíðs Oddssonar, Styrmir Gunnarsson, verður svo að taka aftur við Morgunblaðinu enda morgunljóst að það er ekki á færi annarra að stýra því blaði og hafa taumhald á Agnesi Bragadóttur.
Framsóknarflokknum getur enginn bjargað nema Steingrímur Hermannsson. Þessi ástsælasti leiðtogi framsóknarmanna frá upphafi hefur setið lengi á friðarstóli en hann einn getur komið í veg fyrir að Páll Magnússon, sem Finnur Ingólfsson og Halldór Ásgrímsson hafa mótað í sinni mynd, gangi af flokknum dauðum. Með því að leiða þá Steingrím, Davíð, Jón Baldvin og Styrmi aftur á sínu gömlu bása kemst aftur á gamalt og gott jafnvægi fjórflokkakerfisins. Við munum ekki einu sinni þurfa að hafa áhyggjur af nýju spillingunni þar sem við fáum þá gömlu aftur. Egill Helgason mun ekki einu sinni þurfa að flýja land. Allt verður eins og það var og á að vera. Friður óttans er miklu betri en sá ófriður sem nú ríkir.
Blogg
Endurnýjun og endurvinnsla
08:10 › 9. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
