ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Fögur er hlíðin...

08:19 › 4. desember 2008

Svarthöfði hefur heyrt skrautlegar sögur af því að fjöldi fólks hyggi nú á landflótta. Hér sé ekki lengur búandi og það ætli því í sjálfskipaða útlegð. Ja, kannski ekki alveg sjálfskipaða þar sem ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafi ýmist með aðgerðum sínum eða aðgerðaleysi rekið fólkið úr landi. Svarthöfði hefur afráðið að fara hvergi. Aldrei. Enda sér hann möguleika í þessari þröngu stöðu sem hefur orðið til þess að vinir hans og kunningjar ætla í útlegð.

Svarthöfði þurfti ekki einu sinni að reka stórutána í vegarkant, hrasa, horfa svo til himins, reka augun í Esjuna og hrópa upp yfir sig að fögur væri hlíðin með bleikum ökrum og slegnum túnum. Enda var ekkert slíkt að sjá. Við Svarthöfða blasti bara hálfkarað tónlistarhús og trylltur múgur á Arnarhóli. Svarthöfði ætlar bara að bíða þetta lið af sér. Leyfa því að flýja land út í óvissuna og þegar skríllinn er farinn verður Svarthöfði eftir í gósenlandi.

Svarthöfði er nefnilega svo lífsreyndur að hann veit að engu breytir hvert á land maður fer, alltaf skal maður burðast með sjálfan sig með. Og maður verður alveg jafnblankur og illa settur í útlöndum og hér heima.

Þetta veit unga og gáfaða fólkið ekki og þess vegna fer það fyrst og svokallað „brain drain“ verður. Svarthöfða finnst það bara fínt vegna þess að eftir því sem gáfnaljósunum hér fækkar verður hann hlutfallslega gáfaðari. Þá getur Svarthöfði ekki beðið eftir því að allar þessar sítuðandi barnsmæður hans yfirgefi landið. Þá snýst nú taflið við. Svarthöfði tekur börnin, fær himinháar barnabætur greiddar mánaðarlega og hættir að borga mæðrunum meðlag. Þvert á móti munu þær þurfa að senda Svarthöfða meðlagsgreiðslur úr útlegðinni. Í kreppunni og bankahruninu kemst loks jafnvægi á karmareikning Svarthöfða.

Svarthöfði stefnir að því að gerast hústökumaður eftir að fjöldinn hefur yfirgefið landið og hefur augastað á höfuðstöðvum Kaupþings í Borgartúni. Þar eru skemmtilegir vatnsveggir og bíósalur fyrir krakkana. Svarthöfði ætlar að gera Borgartúnið að sínu goðorði og mun að sjálfsögu sanka að sér fúlmennum og mynda klíku eins og sönnum höfðingja sæmir.

Krakkarnir verða svo þjálfaðir í vasaþjófnaði, búðahnupli og öðrum smáglæpum sem verður beint gegn öryrkjum og gamalmennum sem geta illa varið sig. Allir aðrir verða löngu farnir. Svarthöfði sér fyrir sér að hann muni reyna að laða til sín treggáfaða veiðimenn sem eiga úrval af rifflum og haglabyssum en þegar siðleysið brestur á liggur í augum uppi að þeir sterkustu og best vopnum búnu muni komast af. Þessar kempur munu slá skjaldborg sinni um höfuðstöðvarnar í Borgartúninu og síðan verður ekið um héruð á stolnu bensíni og veist að þeim sem minna mega sín.

Svarthöfðu mun að sjálfsögðu ekki borga af verðtryggðum okurlánum né sinna neinum öðrum samfélagsskyldum enda verður samfélagið eins og við þekkjum það löngu hrunið. Og vei þeim innheimtumönnum ríkisins sem hyggjast gera aðför að lögum að Svarthöfða. Öllum slíkum árásum verður mætt af fullri hörku með fulltingi áttavilltra en vel vopnaðra skósveina.

Fariði bara öll sem fyrst og skiljið Svarthöfða eftir í gósenlandinu til þess að ræna og rupla því litla sem eftir er. Nú hefur öllu verið á botninn hvolft og Svarthöfði sem hefur alla sína tíð verið minnipokamaður, svokallaður lúser, verður nú loks aðal. Sælir eru þrautseigir því þeir munu Ísland erfa.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?