Svarthöfði spáir því að þjóðstjórn taki við völdum á Íslandi. Þessi sýn birtist honum í draumi. Þar var margt valinkunnra manna og kvenna. Viðskiptaráðherra var Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi skipstjóri Baugs, sem sneri heim frá allsnægtum í Flórída til að leggja landi sínu lið á hörmungatímum.
Heilbrigðisráðherra var Jónína Benediktsdóttir sem fylgt hefur þjóðinni um áratugi og reglulega náð eyrum alls almennings eins og þegar hún sagði að Barbie væri dauð og fegurðardýrkun að baki. Augljóst var að dómsmálaráðherra utanþingsstjórnarinnar yrði Haraldur Johannesen, núverandi ríkislögreglustjóri, sem hefur sýnt sig í því að vera snöggur til ákvarðana í mikilvægum málum og ekki mjög bundinn af formi eða óþarfa lagakrókum. Sjónvarpsmaðurinn Sigmundur Ernir var félagsmálaráðherra, einkum vegna þess hversu hvasseygur hann er og ákveðinn á svip.
Fjármálaráðherra draumastjórnarinnar var að sjálfsögðu Björgólfur Guðmundsson sem hefur séð tímana tvenna í peningamálum. Enginn er betri í að greiða Icesave-flækjuna en einmitt Bjöggi sem stofnaði til hennar og er því öllum hnútum kunnugur. Gamli Þjóðminjavörðurinn, Guðmundur Magnússon, sem varð að hætta því starfi vegna ,,tæknilegra mistaka" varð hreinlega að fá ráðherrastól. Hann stýrir vefmiðlinum Eyjunni en hefur átt sér þann draum lengi og einlæglega að komast í pólitík. Nú rann upp sú stund og þótti vænlegast að hann yrði utanríkisráðherra. Nauðsynlegt var að koma öðrum vefritstjóra, Óla Birni Kárasyni, til valda. Hans reynsla úr viðskiptalífinu er gríðarleg og sársaukafull sem þýðir að hann hefur í senn lifað og lært. Þar sem enginn ráðherrastóll sem hentaði honum var á lausu fékk hann embætti samgönguráðherra.
Athafnamaðurinn Ástþór Magnússon var augljós kostur í ríkisstjórn. Hann hefur barist fyrir því að verða forseti en verið þónokkuð frá því að ná árangri. Íslenska þjóðin fékk nú tækifæri til að hefja hann til áhrifa. Tilvalið þótti að hann yrði iðnaðaráðherra en ekki er ljóst af hverju.
Vandinn var sá helstur að finna forsætisráðherra draumastjórnarinnar. Eftir skamma íhugun í draumi Svarthöfða lá svarið í augum uppi. Ísland er ekki konungsveldi en samt er nauðsynlegt að nýta reynsluna af góðum mönnum. Tími Davíðs Oddssonar er liðinn en komið að syni hans, krónpinsinum Þorsteini Davíðssyni, sem náð hefur þeim frama að vera orðinn héraðsdómari úti á landi. Þorsteinn þótti hinn augljósi kostur til að stjórna landinu og þar með gekk Ísland í erfðir. Rétt er að taka fram að þetta var aðeins draumur en ekki völvuspá.
Blogg
Draumastjórnin
08:08 › 30. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
