Einhverju sinni gerðist það, þegar Alþýðuflokkurinn heitinn mældist sérlega illa í skoðanakönnunum, að menn fóru að gantast með að fylgið mældist í bjórstyrk. Þá var fylgið í kringum fimm prósentin. Reyndar ekki nóg með það heldur mældist fylgið í höfuðborginni álíka mikið og áfengismagnið í pilsner, tæp tvö prósent. Svarthöfða kom þetta í hug þegar hann skoðaði nýjustu skoðanakönnun Capacent um óánægju landsmanna með marga stjórnmálamenn.
Nú eru aðeins 4,5 prósent landsmanna ánægð með störf Árna Mathiesen, fjármálaráðherra og foringja sjálfstæðismanna í suðurkjördæmi. Fylgið mælist því álíka mikið og þeir bjórar sem hafa minnsta áfengismagnið. Ánægjan er því öllu minni en áfengismagnið í bjórnum sem ber nafn eins helsta kennileitis í kjördæmi ráðherrans, Gullfoss mælist fimm prósent á alkóhólskalanum.
En auðvitað er ósanngjarnt að taka einn mann út úr, enda ekki tilgangurinn að fara að persónugera þessa mælingu í einum manni. Það má auðvitað ekki. Og það má að sjálfsögðu ekki gleyma því að enn lýsa fleiri ánægju með störf Árna Mathiesen en segjast myndu kjósa heilu stjórnmálaflokkanna. Þannig lýsa aðeins þrjú prósent stuðningi við Frjálslynda flokk Guðjóns Arnars Kristjánssonar og álíka margir segjast myndu kjósa Íslandshreyfingu Ómars Ragnarssonar. Hvorugur nær því bjórfylginu en samanlagt ná þeir að toppa góðan Stout-bjór. Rétt svo.
Svo eru auðvitað þeir sem njóta meira en bjórfylgis. Vinstri-græn komu út úr síðustu kosningum með fylgi sem jafnaðist upp á hár við áfengismagnið í Truchard Syrah, dökkrúbínrautt rauðvín með meðalfyllingu, hvers bragði og angan er lýst sem sælgætiskenndum berjabláma, ristaðri eik og kryddi. Nú er öldin önnur. Fylgi vinstri-grænna hefur blásið út, sérstaklega eftir hrunið. Nú eru vinstri-græn ekki lengur rauðvín, nú eru þau Hot n' Sweet. 32 prósent. Best drukkið sem skot, í litlum skömmtum. Þó þjóðin hafi kannski aðra skoðun núna.
Steingrímur Jóhann Sigfússon og félagar eru á uppleið. Sömu sögu er ekki að segja af Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn var koníak, nánar tiltekið Meukow, 36,66 prósent. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn fallinn. Nú mælist fylgið aðeins 21 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur koníak. Hann er Malibu kókoslíkjör. Geir H. Haarde? Hann er sterkari. Slagar upp í að vera möndlulíkjör, sem er kannski við hæfi nú þegar aðeins þrjár vikur eru þar til möndlugrauturinn verður borinn á borð á mörgum heimilum.
Svo er auðvitað hún heilög Jóhanna (sem einhvern tíma átti víst að vera skammarheiti). Þjóðin elskar Jóhönnu, enda mælist ánægja almennings með störf hennar miklu meiri en annarra ráðherra. Meira að segja sterkasta vínið í ríkinu hefur ekki roð í Jóhönnu. Það er Stroh 60, nefnt eftir 60 prósenta styrkleikanum. Það er það sterkasta á skrá í ríkinu.
Blogg
Fylgi og styrkur
08:26 › 3. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
