Svarthöfði elskar sannleikann umfram allt. Frá því hann var ungur maður var hann til í að fórna öllu og öllum fyrir sannleikann. Þegar ung systkini hans skræktu af gleði við að fá í skóinn hélt Svarthöfði þrumuræðu um vafasama sönnunarbyrði varðandi tilvist jólasveinsins. Í jarðarförum ættingja átti Svarthöfði það til að stöðva predikun og gagnrýna harðlega hin sjálfgefnu fyrirframsannindi sem fólk gæfi sér fyrir tilvist Guðs og himnaríkis. Hann sagði engin vísindaleg rök hníga til þess að hinn látni færi til himna, og að það væri andstætt öllum rannsóknum að hinn látni hefði yfirhöfuð sál.
Þegar Svarthöfði var ungur hringdi hann oft á lögregluna vegna móður sinnar. Hún hafði átt það til að aka of hratt og leyna því fyrir yfirvöldum. Almannarök hníga til þess að fólk aki á réttum hraða - þetta varðar mannslíf. Þegar vinahópur Svarthöfða skipulagði óvænta ánægju fyrir afmælisbarn í hópnum blöskraði Svarthöfða leyndin og hreinlega öskraði sannleikann yfir afmælisbarnið áður en að veislunni kom. Svarthöfði sendir jafnan fjöldapósta þegar hann kemst að einhverju misjöfnu um fólk. Hann hefur oft komið upp um vini sína, sem segja ljóta hluti um hvora aðra í einkasamtölum. Svarthöfða þykir nefnilega allra mikilvægast af öllu að fólk fái sannleikann beint í æð.
Með tímanum hættu vinir Svarthöfða að treysta honum fyrir nokkrum hlut og þá beið krossferð hans fyrir sannleikanum skipbrot. Í kjölfarið fór hann að einbeita sér meira að óhefðbundnum aðferðum til að finna sannleika sem varðar almannahagsmuni. Svarthöfða tókst til dæmis að koma upp um hræsni nafngreindra, frægra einstaklinga. Hann fór iðulega niður í bæ og fann út að sumt þetta fólk sem kemur stífmálað og sléttgreitt fram í sjónvarpinu hefur allt annan og verri þokka síðla nætur. Svarthöfði baktryggir sig gjarnan með því að mynda fólkið. Því ef það dirfist að afneita sannleikanum getur hann komið upp um lygina samstundis og eftir á, og komið þannig öðrum sannleika á framfæri. Ófáir aðilar og fjölmiðlar hafa fengið tölvupóst frá Svarthöfða þegar hann hefur náð að hlera samtöl nafngreindra aðila, þar sem þeir segja eitthvað misjafnt um annað nafngreint fólk.
Eitt mesta þrekvirki Svarthöfða í þágu sannleikans var að fletta ofan af lygum ömmu sinnar. Þá hafði hann komist að því að kerlingin hafði verið gift öðrum manni í skamman tíma, áður en hún kynntist afa hans, og leynt því fyrir honum alla tíð.
Svarthöfði fór á fund ömmu sinnar á elliheimilið til þess að ræða málin við hana. Hann spurði hana út í fyrri eiginmann hennar. Hún sagðist ekki hafa geta sagt afa frá þessu, því hún hefði metið það sem svo að hann tæki það of nærri sér. Amma grátbað Svarthöfða sinn að segja afa ekki frá þessu, þar sem það yrði hreint skaðræði fyrir hana og hjónaband þeirra. Hún sagðist aðeins elska afa, og hafa gert það alla tíð, og að fyrri eiginmaður hennar væri löngu gleymdur. Þá áttaði hún sig ekki á því að Svarthöfði var að taka samtalið upp á vídjótökuvél sem hann hafði pantað á eBay og passaði akkúrat í bindið hans.
Eftir að Svarthöfði hafði spilað vídjóið fyrir afa sinn varð amma hans sár og reið. Það eru eðlileg viðbrögð lygara við afhjúpun. Svarthöfði hóf upp raust sína: Fjölskyldan er grundvallarstofnun samfélagsins. Hjónabandið er límið sem heldur fjölskyldum saman. Það varðar almannahagsmuni að leynimakk og lygar séu ekki við lýði í fjölskyldum. Hjón eiga að elska hvort annað og virða.
Amma Svarthöfða reyndi að réttlæta hlutina fyrir afa. Hún sagði að hún hefði gifst manninum af fljótfærni og í skyndi, og að þau hefðu einungis verið saman í þrjá mánuði. Það var þá sem Svarthöfði náði að negla ömmu sína fyrir þann lygara sem hún er. Hann reiddi fram ástarbréf frá henni til fyrrum eiginmanns hennar. Bréfið var dagsett sex mánuðum fyrir giftingu þeirra. Þar sem hjónabandið stóð yfir í tvo mánuði, var ljóst að þau höfðu verið í einhvers konar ástarsambandi í minnst átta mánuði.
Undanfarið hefur Svarthöfði verið eins og brjálaður stærðfræðingur að leggja saman tvo og tvo um samsærin í þjóðfélaginu. Egill Helgason birtir tölvupóstana yfirleitt á vefsíðu sinni eins og þeir koma af kúnni. Oft er tilgangur Svarthöfða einungis að velta upp þeim möguleika að einhver kunni að vera spilltur að þessu eða hinu leyti, en þótt það sé kannski ekki örugglega satt vekur það upp umræðu sem svælir tæran sannleikann upp á yfirborðið.
Svarthöfði hefur tileinkað líf sitt því að velta við steinum, rjúfa þagnarmúra og leysa upp leyndarhjúpa. Sumum mun svíða undan kastljósi sannleikans, en Svarthöfði hættir ekki fyrr en íslenska þjóðin fær að vita allt um alla. Og þótt hann þurfi að svíkja og ljúga til að gera það skiptir það engu máli, því tilgangurinn helgar meðalið.
Blogg
Krossfari sannleikans
08:32 › 19. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
