ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Nýju jólasveinarnir

08:22 › 11. desember 2008

Svarthöfði hefur ákveðið að koma sér upp sínum eigin jólasveinum. Að vísu er ekki meiningin að ýta neinum til hliðar enda slíkt ekki lenska hér. Jólasveinar Svarthöfða eru þeir sem sitja sem fastast í störfum sínum og iðrast einskis. Þeir eru til staðar allt árið.


Rústasleikir situr í Seðlabankanum og leitar uppi verðmæti í rústunum sem hann sjálfur átti stærstan þátt í að skapa. Rústasleikir er yfirjólaveinn og hann fer gjarnan í viðtöl í jólasveinamiðlunum þar sem hann gefur fólki loðnar vísbendingar um afglöp annarra jólasveina. Sjálfur er hann vammlaus. Bestu viðtölin við hann eru gjarnan í erlendum jólasveinamiðlum. En döpur tungumálakunnátta bjargar honum gjarnan eftirá þegar allt er komið í bál og brand. Í upphafi aðventu ræddi hann við danskt jólasveinablað um að hann ætlaði að fara í kynskiptaaðgerð og verða Grýla. En hann dró það síðan til baka þar sem orðið kynskiptaaðgerð var rangtúlkað. Hann vill samt verða Grýla.


Eftirlitsleysir situr í Fjármálaeftirlitinu og gætir þess vandlega að láta ekki eftirlit sliga vinnustað sinn. Í stórri kommóðu geymir hann viðkvæm, flókin mál. Hann hefur í gegnum tíðina farið reglulega til útlanda til að láta varnaðarorð fram hjá sér fara. Því kom bankahrunið honum gríðarlega á óvart og auðvitað þvær hann hendur sínar af þeim ósköpum. Hann skipar gjarnan gamla jólasveina til starfa í skilanefndunum. Best er að þeir hafi áður verið víttir af Fjármálaeftirlitnu. Brenndur jólasveinn forðast nefnilega eldinn.


Stéttastaur situr í Verslunarmannafélaginu og gætir þess fyrst og fremst að hafa nóg að bíta og brenna. Hann krækir í hluta af launum afgreiðslufólksins og fær inni í sem flestum nefndum og ráðum. Hann er jólasveinn hinna vinnandi stétta en við það að Kaupþing fór á hausinn missti hann spón úr aski sínum og er alveg staur. Stekkjarstaur er eini jólasveinninn sem reglulega býður upp á jólahlaðborð. Gestabókin þar er jafnframt stuðningsyfirlýsing við hann sjálfan.


Lánakrækir situr í forsætisráðuneytinu á milli þess sem hann heldur blaðamannafundi um ekki neitt. Hann er stöðugt skotspónn Rústasleikis sem lúskrar á honum með hrísvendi, bak og fyrir. Hann er fórnarlamb eineltis. Helsta iðja Lánakrækis er að fylla úr lánaumsóknir og telja fólki trú um að botninum sé náð. Lánakrækir er með þá áráttu að geta helst ekki sagt satt orð.


Dýrahrellir er á stóli fjármálaráðherra. Hann er jólasveinninn sem fer illa með fé, sérstaklega sparifé. Hans helsta áhugamál var til skamms tíma að gera at í útlendingum. Svo er hann fjallkóngur þeirra sem smala sparifé saman um víða veröld. þegar af fjalli er komið með safnið neitar hann að draga það í dilka en eignar sér allt féð fyrir hönd allra í Jólasveinalandi.


Óþefur situr á bankastjórastóli í bankanum Glitni. Nafn sitt hlýtur þessi jólasveinn ekki af eiginlegum fnyki, enda viðkomandi hinn mesti snyrtipinni. Þessi eini kvenjólasveinn Íslands, hefur fengist við hlutabréfakaup í eigin banka uppá krít en gleymt að borga. Talsverður fnykur er af þessum viðskiptum en Eftirlitsleysir hefur þó hvítþvegið systur sína af öllum ásökunum um um misferli. Og Óþefur situr sem fastast og aðstoðar Rústasleiki við að vinna gull í grjótnámu hrunsins.


Bankagægir situr á stóli ráðuneytisstjóra fjármála. Hann er haldinn gægjuþörf af praktískum ástæðum. Umsvifamikil hlutabréfaeign víða í Jólasveinalandi kallar á að hann gægist í sem flesta koppa og kirnur. Hann vissi því af hruni jólasveinabankans fyrirfram og náði að selja bréfin sín áður en þau urðu verðlaus. Hann er líka í náðinni hjá Rústasleiki.


Hinir nýju jólasveinar skera sig úr í samfélaginu og enginn vill neitt með þá hafa, nema þeir sjálfir. Á meðan gömlu góðu jólasveinarnir setja í skóinn hjá fólki eru þeir í því að stela úr skónum. Og þannig eru jólasveinar kreppunnar. Allir eiga þessir jólasveinar kreppunnar það sameiginlegt að neita að fara þótt jólin verði að baki. Og ef þeir eru spurðir koma þeir af fjöllum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?