7. nóvember 2008
Flokkur Davíðs
Svarthöfði
Geir mátti láta ýmislegt yfir sig ganga af hendi Davíðs á meðan Davíð var aðal í Flokknum og Geir eitt af peðunum. Þegar Davíð fór leyfði hann aumingja Geir að trúa því að nú væri hann loksins orðinn aðalgaurinn og í gleði sinn fór Geir að brosa og jafnvel kyssa Ingibjörgu Sólrúnu. Loksins, loksins eftir öll mögru árin fékk Geir, hélt hann, að stýra stærsta flokknum. Á ímynduðum valdatíma Geirs stefnir flokkurinn að vísu hraðbyri í að verða smáflokkur við hlið Frjálslynda flokksins og Framsóknarflokks. Ekki síst vegna þess að Geir hefur ekki treyst sér til þess að ganga á milli bols og höfuðs á Davíð. Þeir sem þekkja til innan mafíunnar og hafa horft á Sópranós vita að í aðstæðum sem þessum dugir ekkert minna fyrir arftakann en að stúta þeim gamla.
Þessu þorir Geir ekki af ótta við að þá fyrst gangi Davíð af göflunum og stofni nýjan stjórnmálaflokk. Með öðrum orðum, kljúfi Sjálfstæðisflokkinn í herðar niður og skilji Geir eftir til þess að hafa taumhald á nokkrum vel öldum góðærisgríslingum sem vilja rjúka inn í ESB. Þá hugsun getur Geir ekki hugsað til enda. Hann vill stjórna flokki eins og Sjálfstæðisflokkurinn var á meðan Davíð deildi og drottnaði í Valhöll.
Einu sinni var Sjálfstæðisflokkurinn flokkur Davíðs. Hann er það ekki lengur og verður það aldrei aftur. Geir virðist bara vera svo pólitískt lesblindur að hann áttar sig ekki á þessu. Norska hérahjartað óttast svo um völd sín og áhrif að það sér fyrir sér að maður sem 90 prósent þjóðarinnar hafa hafnað í skoðanakönnunum geti virkilega klofið Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn er þar fyrir utan í molum í höndum Geirs og því illmögulegt að kljúfa hann. Það yrði í það minnsta engin kjarnorkusprenging ef einhverjum tækist að kljúfa það atóm. Hitt er svo aftur víst að Davíð er ekki maður til þess að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn né nokkurn annan flokk. Hann er stærri en svo og sérhæfir sig nú í að kljúfa banka og heilt efnahagskerfi í herðar niður.
Segjum samt sem svo að Davíð tæki upp á því að feta í fótspor Alberts Guðmundssonar og stofna vísi að borgaraflokki þá fengi hann varla einn einasta sjálfstæðismann með sér. Meira að segja Sigurður Kári Kristjánsson myndi hika við að leggja í þá helför með átrúnaðargoði sínu frá barnæsku. Borgaraflokkur Davíðs myndi í besta falli telja þrjá einstaklinga. Davíð sjálfan, Jónínu Benediktsdóttur og Gunnar Smára Egilsson.
Jónína er þegar búin að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum og er því í startholunum. Og fyrir utan hana virðist fjölmiðlamógúllinn fyrrverandi Gunnar Smári einn hafa eitthvert álit á Davíð um þessar mundir. Jónína hefur aldrei dregið dul á Davíðsdýrkun sína en Gunnar Smári hefur komið skemmtilega á óvart upp á síðkastið. Áður notaði hann hvert tækifæri til þess að hnýta ónotum í Davíð. Þá var hann að vísu í Baugsliðinu og tók meira að segja þátt í útrásinni þótt hann vilji lítið við það kannast eftir að hún klúðraðist. Sinnaskipti Gunnars Smára eru alger og mjög dramatísk. Nú sendir hann Jóni Ásgeiri pillur og ver Davíð með kjafti og klóm. Davíð hlýtur að geta fyrirgefið gamlar syndir og þá verða félagar hans í nýja flokknum tveir.
-
Socrates 1 ár, 4 mánuðir
Já, þetta gæti litið svona út á lista:
1. Davíð
2. Jónína Ben
3. Gunnar Smári
4. Agnes Bragadóttir (kynjakótinn)
5. Jón Gerald Bullunkoller
6. Sigurður Kári
7. Gísli Marteinn
8. Hannes Hólmsteinn (kynjaflóra)
9. Björn BjarnasonAllt winnerar dauðans
Fleiri tillögur
-
Aðalsteinn 1 ár, 4 mánuðir
Hallelúja! Lifi byltingin.
-
Funi 1 ár, 4 mánuðir
Hey, við erum búnir að vera með VG á þingi undanfarin ár... ekki betri samsöfnuður þar á ferð... hvað þá Framsókn? Líst best á almenningshugmynd DV í dag.
-
Der Reichsführer des Islands 1 ár, 4 mánuðir
Legg til að DAO kalli nýja flokkinn, Þursaflokkinn.
Þursin verða:
1.DAO
2.Hannes Tælandsfari
2.Jónína Stólpípa
3.Björn byssa
4.Halli ríkislögga
5.Kjartan kjölturakki DAO
6.Villti spillti Villi, þessi gamli góði
7. Árni Joð tækni-mistök
8.Bjarni bóksali
9. Ragnar Arnalds
10.Jón Valur Jens, biblíumaður
11.Páll Vil, Anna Coultard Íslands

















