6. nóvember 2008
Bingi og Steini
Svarthöfði
Nú þegar þjóðin er loks laus við þessa „blaðamenn“ snýr Agnes baki við ritstjórnarstefnu þeirra og aftekur með öllu að blaðamenn eigi að vera að stýra umræðu og véla með hin ólíklegustu samfélagsmál. Það er gott en öllu verra er að Matthías og Styrmir eru ekki fyrr farnir en tveir æðstu stjórnendur Fréttablaðsins stökkva til og fylla skarð þeirra. Þegar Dúettinn Matti og Styrmir þagnaði hófu Bingi og Steini, ekki Dúmbó og Steini, upp raust sína. Þessir tveir ritstjórar Fréttablaðsins í Skaftahlíðinni eru á bólakafi í pólitík og eru hvor um sig með puttana á kafi í innansveitarkrónikum tveggja stjórnmálaflokka.
Þorsteinn grefur leynt og ljóst undan sínum forna fjanda Davíð Oddssyni, æðstapresti Sjálfstæðisflokksins, á meðan Björn Ingi er byrjaður að rifja upp gamla og góða hnífakaststakta með Guðna Ágústsson, formann Framsóknarflokksins, sem skotskífu.
Þorsteinn hefur það umfram Binga að hann er sveipaður ákveðnum virðuleika sem hefur slípast til í gegnum árin í ríkisstjórnum og utanríkisþjónustunni auk þess sem hann skrifar oft einhver orð af viti. Hvað Björn Ingi er að vilja upp á dekk í fjölmiðlum með allan sinn slóða á bakinu er hins vegar hulin ráðgáta. Á meðan hann var taglhnýtingur Halldórs Ásgrímssonar var talað um hann sem PR-mann, jafnvel spunameistara. Örlög Halldórs segja allt sem segja þarf um hæfileika hans á því sviði og brölt hans frá því hann hrökklaðist úr borgarstjórn með REI-forarsletturnar upp eftir bakinu á stífpressuðum fötum sem Framsóknarflokkurinn keypti handa honum sýnir að hann hefur ekkert lært á þessari grýttu braut. Þar fyrir utan má ætla að ekki séu allar beinagrindur Björns Inga komnar út úr skápnum en eftir að hann var sloppinn úr pólitíkinni í Skaftahlíðina spurðist út að hann hefði farið í veglega ferð í eina dýrustu laxveiðiá landsins skömmu áður en hugmyndir um sameiningu REI og Geysis Green Energy skutu upp kollinum í fundargerðum Orkuveitunnar. Með Binga í för voru áhrifamenn hjá Orkuveitunni, fjármálastjóri Baugs og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Það segir sitt um veruleikafirringu Björns Inga að hann telji sig þess umkominn að fjalla um viðskiptalífið, sem blaðamaður, þegar horft er til hans nánustu fortíðar. Björn Ingi lagði sérstaka lykkju á leið sína í leiðara Fréttablaðsins nýlega til þess að ávíta sauðsvartan almúgann fyrir þátt sinn í efnahagshruninu. Þar fauk nú grjót úr glerhúsi manns sem naut sín vel í útrásarflippinu. Höfuðið beit hann svo endanlega af skömminni um síðustu helgi þegar hann fékk útrásarvíkinginn Hannes Smárason í huggulegt spjall til sín í sjónvarpsþáttinn Markaðinn. Ekki var nú meintur blaðamaður mikið að þjarma að Hannesi en kannski var ekki von á mikilli dýnamík í spjalli tveggja aðalleikaranna í REI-afferunni. Væri Björn Ingi með almennilegan PR-mann á sínum snærum hefði hann vit á því að halda sig til hlés þessa dagana og síst af öllu að blanda sér í umræðuna um útrásarhallærið. Góður spunakarl myndi örugglega benda honum á að taka sér frí. Helst á fjarlægri strönd.
En Björn Ingi hefur varla miklar áhyggjur af blaðamannsímynd sinni þar sem hann er enn á kafi í pólitík og þá helst á fullu að grafa undan Guðna Ágústssyni. Á stjórnmálavellinum er jarðtenging Binga ögn betri og hann gerir sér grein fyrir því að hann geti ekki skúbbað Guðna frá sjálfur og tekið sess hans og mun því tefla Óskari Bergssyni fram gegn Guðna. Sjálfsagt finnst flestum öðrum en Binga og Óskari þessi flétta hlægileg en það sem er alls ekkert fyndið við þetta framsóknarmaus er að fjölmiðlamaður skuli standa í því að hanna atburðarásina.
Vonandi renna Mogginn og Fréttablaðið saman sem fyrst þannig að Agnes Bragadóttir geti tekið þessa hvolpa tvo í Skaftahlíð á beinið og útskýrt fyrir Binga að blaðamenn eigi að segja fréttir, ekki búa þær til.
-
Jörundur Þórðarson 1 ár, 4 mánuðir
Mér finnst ekki gaman að lesa þetta. Þú ert enn einu sinni að hjakka á mistökum manna, sem urðu að gjalda fyrir með ferli sínum í pólitík. Björn Ingi galt fyrir sín mistök. Þessi skrif þín segja meira um þig.
-
Socrates 1 ár, 4 mánuðir
Björn Ingi er að vinna þjóðþrifaverk þessa dagana og um það efast enginn.
Sjálfur hafði ég ekki mikið álit á honum þegar hann var í Framsókn á sínum tíma enda augljóslega í vitlausum flokki.
Hann hafði vit á að fara úr pólitík á réttum tíma en þekkir þar vel til, ekki síst baktjaldarmakkið og hvernig kaupin gerast í raun á eyrinni.
Við megum þakka fyrir það ekki síst á tímum sem þessum.
Björn Ingi rokkar feitt núna.

















