ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Þeir lentu í því

08:29 › 4. nóvember 2008

Eftir nokkurra vikna þögn hafa útrásarvíkingar dúkkað upp á réttum vettvangi þar sem þeir hafa fengið varfærnar spurningar um sitt eigið ágæti. Þá hafa þeir gjarnan notað tækifærið og játað á sig smáleg mistök en í leiðinni lýst af einlægni þekkingu sinni og góðvilja í garð almennings á Íslandi.

Sá víkingur sem fyrstur féll í valinn var Hannes Smárason sem um árabil baðaði sig í ljóma útrásarinnar. Upphaf að ferli Hannesar má rekja til þess að hann var aðstoðarforstjóri Kára Stefánssonar hjá Íslenskri erfðagreiningu. Í sameiningu náðu þeir félagar að raka til sín fé Íslendinga sem trúðu því að allt færi upp en leiðin niður væri ekki til. Reyndin varð önnur með töfrafyrirtækið í Vatnsmýrinni. Almenningur fjárfesti á himinháu gengi og varð síðan að þola skell sem varð mörgum ofviða. Fyrirtækið hefur fram á þennan dag ekki fengið tekjur sem duga fyrir gjöldum og gengi þess er niðri í kjallara. Þetta var sem sagt eins og gasblaðra sem svífur upp í himininn þar til þrýstingurinn ber hana ofurliði.

Hannes fór með reynslu sína inn í fluggeirann og flaug um tíma hátt. Allskonar tvist sem voru almenningi óskiljanleg enduðu síðan með brotlendingu og fyrsti útrásarvíkingurinn var fallinn. Tugmilljarðar töpuðust og Hannes hrökklaðist úr landi. Um helgina dúkkaði Hannes síðan upp á Markaðnum á Stöð 2. Bláeygur, sléttur í framan eins og barnsrass, horfði hann þráðbeint í augu þjóðarinnar og bauð af örlæti fram hjálp sína til að rétta af þjóðarbúið. En aðeins ráð, ekki peninga.

Stærri hákarl en Hannes, Björgólfur Thor Björgólfsson, hafði viku fyrr birst í álíka viðtali í Kompás á Stöð 2. Hann er eitt fórnarlamba breskra sparifjáreigenda sem settu Landsbankann á hliðina með því að leggja peninga sína inn á IceSafe-reikninga. Bölvaðir Bretarnir gátu ekki sætt sig við að peningar þeirra færu til Íslands og allt endaði með þeim ósköpum að hryðjuverkalög voru sett á Landsbankann. Auðvitað fann júníorinn enga sök hjá sér vegna mannvonskunnar sem hafði fellt bankann. En hann er líka tilbúinn að koma til Íslands og bjarga þjóðinni, en ekki með peninga.

Þriðji víkingurinn sem rís nú til hæstu hæða í ráðgjafarhlutverki er Gunnar Smári Egilsson. Hann dúkkaði upp í Silfri Egils undir starfsheitinu blaðamaður og gagnrýndi þotuliðið ákaflega. Sjálfur sagðist hann ekki einu sinni eiga bíl. Skilja mátti að hann væri einskonar karlútgáfa af móður Teresu og færi um meðal fólksins og gæfi kreppuráð. Áður, þegar spurðist til Gunnars Smára, var hann ferðafélagi auðmanna. Hann stofnaði fjölda fjölmiðla í tveimur heimsálfum sem allir eiga það sammerkt að hafa orðið gjaldþrota eða hafa lent í alvarlegum kröggum. En auðvitað ber hann enga ábyrgð því eins og fram kom í máli hans var útrásin blekking. Hann getur ekkert að því gert að danskt fríblað hafði tapað langt á annan tug milljarða króna áður en yfir lauk. Hann er bara blaðamaður sem „lenti í því“ að stofna fjölmiðla.
Fleiri fönixar hafa sprottið fram úr hreinsunareldinum til að sverja af sér meðvitaða þátttöku í mislukkuðum útrásarverkefnum. Allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa lent í hinu og þessu. Það minnir raunar á Akureyringinn sem varð frægur eftir að hafa birst á forsíðu Séð og heyrt þar sem hann sagðist hafa „lent í framhjáhaldi“. Nú þarf íslenska þjóðin að þiggja hjálp uppvakninganna sem lentu í útrásarbruðli. Það væri fyrirtakshugmynd að verðlauna þá fyrir einlægnina með því að fela þeim ný verkefni í þágu lands og þjóðar. Aðalatriðið þar er að þeir hafi engin fjárráð. Annars gætu þeir lent illa í því; aftur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?