Nú hefur Svarthöfði sérstakan áhuga á Davíð Oddssyni, enda maðurinn búinn að vera helsti ráðamaður Íslendinga um áratuga skeið. Því beið Svarthöfði spenntur eftir því að sjá Davíð í Háskólabíói róandi fjöldann og bendandi á hvaða vörnum hann hefði haldið uppi fyrir íslenska þjóð í hremmingum síðustu vikna og mánaða. Gott ef Svarthöfði bjóst ekki við því að sjá Davíð leiða fundargesti út í nóttina til að stofna nýjan flokk, eða yfirtaka og endurreisa Sjálfstæðisflokkinn sem óneitanlega hefur staðið betur en hann gerir í dag.
Svarthöfða varð ekki að ósk sinni. Á sviðið voru vissulega mættir átta af tólf ráðherrum. Og þar var vissulega nokkur fjöldi þingmanna. En þar var Davíð Oddsson seðlabankastjóra hvergi að sjá. Og er ekki úr vegi að segja að hjarta Svarthöfða hafi sokkið lítið eitt. Hvar var Davíð?
Nú er það í tísku að ráðamenn þjóðarinnar hverfi snögglega á braut. Halldór Ásgrímsson, eftirmaður Davíðs á stóli forsætisráðherra, hvarf nokkuð snögglega á braut sumarið 2006. Og hefur lítið viljað ræða við íslenska fjölmiðlamenn eftir að hann fór til Danmerkur og komst að því að þarlendir blaðamenn eru mun betri en íslenskir kollegar þeirra. Og Guðni hvarf svo snöggt á braut að enginn fékk að ræða við hann. Og þó íslenskir fjölmiðlar tækju erlenda sér til fyrirmyndar og hreinlega eltu Guðna varð þeim ekki að ósk sinni. Ekki frekar en þeim landsmönnum sem vildu fá að vita hvers vegna Guðni væri allt í einu hættur og farinn til Kanaríeyja.
En það er þetta með Kanarí. Gæti Davíð hafa farið til Kanarí til að leita Guðna uppi? Nú hefur þráfaldlega verið talað um að Davíð og Guðni kunni að stofna þjóðlegan flokk sem nær þvert á línur núverandi flokka. Og var það ekki einmitt Davíð Oddsson sem stakk upp á því að þjóðin flýði til Kanaríeyja? (Reyndar út af atlögu gegn kvótakerfinu en ekki hruni íslensks bankakerfis og efnahagslífs.)
Hvernig væri nú ef Davíð settist niður á Klörubar með Guðna Ágústssyni yfir fleytifullum diski af saltkjöti og baunum og þeir tækju til við að ráða lausn á vanda Íslendinga? Með öflugan landbúnað og sjávarútveg að vopni, sjálfstæðisbaráttu gegn ESB og EES í forgrunni og þjóðleg gildi ómandi þar sem auðmenn yrðu snúnir niður við hvert tækifæri? Þarf ekki í það minnsta eitthvað að gerast áður en íslensk þjóð tekur sig upp og flytur búferlum til Kanaríeyja? Áður en fólk hættir að borga af lánum sínum og skilar inn lyklum að bílum sínum og húsum til bankanna og Íbúðalánasjóðs? Áður en uppreisnin hefst.
Spyr Svarthöfði sem sá sinn Davíð hvergi á borgarafundinum í Háskólabíói.
Svarthöfði sá hins vegar margt frambærilegt fólk. Ekki síst þá sköruglegu verkakonu Margréti Pétursdóttur sem sýndi alþjóð hversu auðvelt er að fá ráðamenn til að standa upp af valdastólum, bara svo fremi sem þeim sé ekki sagt hvað þeir eru að gera fyrr en eftir á. Allavega virtust einhverjir ráðherrar og þingmenn roðna í framan eftir að hún gerði þeim þennan grikk.
Blogg
Hvar var Davíð?
08:09 › 26. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
