ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.3° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Orðræða valdsins

08:08 › 25. nóvember 2008

Á sínum yngri árum var Svarthöfði byltingarsinnaður kommúnisti, trúði á hugsjónir og var tilbúinn til þess að berjast fyrir betri heimi. Og jafvel týna lífi í þeim átökum. Eldmóðurinn er fyrir löngu runninn af Svarthöfða sem notar laugardagana nú til þess að dytta að ýmsu smálegu á blúndumskreyttu og bróderuðu heimili sínu.

Í huganum fylgir Svarthöfði samt mótmælendum á Austurvelli að málum og er sérstaklega ánægður með vasklega framkomu unga fólksins. Í huga Svarthöfða er það unga fólk sem fer mikinn í mótmælunum íslenskri æsku til mikils sóma. Í raun hlýtur eitthvað að vera að unglingum sem fyllast ekki eldmóði þessa dagana og láta í sér heyra í baráttunni fyrir framtíð sinni.

Svarthöfði hefur fylgst með hinum vaska Hauki Hilmarssyni af aðdáun og þótt mikið til um framlag þessa drengs í baráttunni. Svarthöfði fékk gæsahúð þegar hann frétti af því merkingarhlaðna uppátæki drengsins að draga gunnfána bleika Bónusgríssins að húni á hinu tigna Alþingi. En eins og væntingarnar til hinnar ungu byltingarhetju voru miklar eru vonbrigðin þeim mun sárari.

Blessaður drengurinn ætlaði að nota tíma sinn bak við lás og slá í borgaralegt dútl eins og að skrifa uppkast að ritgerð sinni í Háskólanum. Gott og vel. Menntun er göfug og ekki veitir af að hafa kúrista í flokki uppreisnarfólks. Í ljósi orða og gjörða mótmælandans unga undanfarið er Svarthöfði hins vegar farinn að hallast að því að stráksi ætti frekar að lesa byltingarrit og sögu mótmæla í gegnum tíðina fremur en heimspeki. Hann er nefnilega pikkfastur í orðræðu valdsins og er innvígður og innmúraður í völundarhús þess kerfis sem hann telur sig í barnalegu ungæði vera að berjast gegn. Mótmælandinn ungi er nefnilega með málflutningi sínum í hrópandi mótsögn við sjálfan sig og það sem hann telur sig standa fyrir.

Ekki ætlar Svarthöfði að halda því gegn honum að hann hafi brotið odd af oflæti sínu með því að leyfa embættismanni að greiða sekt sína svo hann mætti fá frelsi. Þarna var hann ekki að hugsa um eigin hag heldur líf og limi þeirra sem mættu til þess að sýna honum stuðning við lögreglustöðina. Um leið varð hann þó leiksoppur valdsins sé það rétt að kerfiskarl hafi fengið hann lausan. Með því að neita að segja til velgjörðarmannsins gerir hann sig hins vegar sekan um nákvæmlega þá sömu hegðun og þeir stjórnmálamenn sem mótmælin á Austurvelli hafa beinst gegn. Fjöldinn vill binda enda á allt leynimakk og pukur. Fá sannleikann upp á borðið. Ráðherrarnir fela sig bak við leyndina og það gerir Haukur líka.

Þá finnst Svarthöfða rök Hauks fyrir því að vilja ekki sýna sitt rétta andlit ekki halda vatni. Hann gengur þar beint í inni orðræðu Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem leggur blátt bann við því að efnahagshrunið sé persónugert í Davíð Oddssyni. Mótmælandinn ungi segist ekki vilja persónugera mótmælin í sjálfum sér með því að kasta grímunni. Taki þessi ungi maður ekki hressan þroskakipp verður hann orðinn eins og Svarthöfði eftir nokkur ár og mun spóka sig með bindi í silkislopp á smáborgaralegu heimili sínu.

Sú mynd sem hann hefur af sjálfum sér og mótmælunum lýsir í versta falli hroka vanþroska unglings sem ofmetur stöðu sína í lífinu. Í versta falli mun þetta þróast út í þann sama hroka og Geir og Davíð hafa sýnt og hefur steypt okkur í glötun. Eða heldur þessi ungi maður virkilega að persóna hans hafi eitthvað með það að gera að fólk komi þúsundum saman á Austurvelli vikulega? Byltingin er ekki hafin og samt er hún byrjuð að éta börnin sín.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?