ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.4° 9m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Við vorum tekin!

08:27 › 20. nóvember 2008

Svarthöfði hefur loksins fengið svar við því hverjir fara best út úr kreppunni. Það eru sökudólgarnir.
Viðskiptajöfrarnir og bankamennirnir sem dældu lánsfé inn í hlutabréf sleppa flestir með tugi ef ekki hundruð milljóna króna. Ábyrgðir bankafólksins í Exista og Kaupþingi voru meira að segja felldar niður. Og hver gerði það? Auðvitað bankamennirnir sjálfir, Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson. Þeir sem rústuðu íslenskt efnahagslíf eru þeir sem fara best út úr hruninu.

Aðrir sem fara vel út úr kreppunni eru alþingismenn, ráðherrar og seðlabankastjórar. Þeir eru í frábærum málum. Þeir eru ekki að fara að missa vinnuna, síður en svo. Hver á að reka þá? Þeir sjálfir eða flokkssystkin þeirra? Ekki séns. Þetta sama fólk sem beinlínis bjó til kreppuna er það eina sem sleppur algerlega við hana. Og ekki skemmir fyrir að þessar blóðsugur almannafjár geta nú komið öllum vinum sínum fyrir í skilanefndum og bankaráðum. Vinirnir sem verða út undan geta alltaf fyllt upp í nýtilkomnar stöður aðstoðarmanna þingmanna. Það er blússandi góðæri hjá þessu liði. Hvað annað er það en góðæri þegar maður fær borgaðan ferðakostnað fyrir að sitja á rassinum og starfskostnað fyrir ekki neitt? Laun þeirra virða ekki einu sinni eðlisfræðilögmál, hvað þá hagfræðilögmál.

Við hin sem horfum upp á lánin okkar hækka, launin lækka og störfin gufa upp, megum umfram allt ekki trufla ráðamennina þegar þeir „slökkva eldinn“. Það má alls ekki halda kosningar alveg strax, því þær trufla þá svo mikið í að skuldsetja almenning um ókomna tíð til að halda við krónuógeðinu. Meira að segja Steingrímur J. Sigfússon og Guðjón A. Kristjánsson vilja ekki kosningar strax, þótt þeir séu í stjórnarandstöðu. Kannski það sé ekki vegna okkar hagsmuna sem ekki mega vera kosningar, heldur vegna þess að þá gætu þeir lent í því sama og almenningur, að missa vinnuna. Í það skiptið væri þó um réttláta uppsögn að ræða. En uppsögn hjá alþingismönnum hefur allt aðra merkingu en hjá almenningi. Hjá okkur er það peningaleysi, neyð og gjaldþrot, en hjá þeim er afsögn bara annað orð yfir „frí“.

Ef allt fer á versta veg bíða þessara alþingismanna þau örlög að fara til Kanaríeyja í sex mánaða launað frí. Þetta kalla þau biðlaun. Það er ekki séns að þau missi þessi laun, þetta er algerlega innmúrað og innvígt. Síðan tekur við óvissan, nagandi óvissan um hvort þeir eigi að þiggja eftirlaun á meðan þeir þiggja stjórnendalaun fyrir störf sín hjá stofnunum ríkisins með hjálp vina sinna í flokknum. Að fá tvöföld laun, eða ekki tvöföld laun? Sá á kvölina sem á völina. Er einn fugl í hendi betri en tveir í skógi? Er betra veður á Kanarí en Tenerife? Fer betur um mann á Lanzarote eða Fuerteventura? Þetta eru áleitnar spurningar sem sækja að þingmönnum þegar þeir lenda í atvinnumissi.

Davíð Oddsson einn og sér náði að hækka eftirlaun sín um frábær mánaðarlaun, 400 þúsund. Og það er auðvitað ekki í forgangi hjá Samfylkingunni að standa við ítrekuð loforð sín um að afturkalla þau lög. Samfylkingin er nefnilega Framsóknarflokkur í yfirvigt, þráir ekkert heitara en að halda völdum, hvað sem það kostar. Því kostnaðurinn fellur bara á almenning hvort eð er.

Svarthöfði getur ómögulega treyst fólki til að slökkva eldinn, þegar sama fólk er að ylja sér við eldinn. Fyrr en varir fara þau, þegar eldurinn kulnar og eftir hvílir ísköld askan ein, til Kanarí á sandölum og í ermalausum bol. Viðurkennum það bara, við vorum tekin! Við erum fórnarlömb hins fullkomna glæps. Einhver braust inn á heimili okkar, hélt hasarpartí, bauð okkur ekki, en við eigum að taka til eftir það.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?